Æskan

Árgangur

Æskan - 15.12.1926, Blaðsíða 11

Æskan - 15.12.1926, Blaðsíða 11
Æ S K A N 103 til íulls þau bönd, sem til málamynda tengdu hann enn keimilis- og kjúskap- aiböndum. Hann var fálalaður, kvaðst vera þreyltur og mællist til þess að mega hátta sem fyrst. Innan skamms voru allir sofnaðir nema kúsfreyja, sem vakti eftir manni sínum. Henni var hálf-órólt. Stormur- inn knúði baðstofuþekjuna og hlóð snjónum í skafla. Og þó var jóianólt. Ótal barnabænir leiluðu á fund föð- urins. Óinur af Iofgerð englanna barst frá einu beimskauli til annars; hver- vetna var fagnað yfir komu frelsaians, og i afskektu, fátæklegu sveitabýli kraup kona og móðir við fótskör Drotlins, og þakkaði gjöf jólanna. Nótlin belga var óskastund hennar. — — Húsbóndinn var kominn heim, með þyDgsIa byrði, bæði á baki og brjósti. Því í fanginu hélt hann á stálp- uðu, sofandi sveinbarni. »Eg rakst á hann hjá vörðusteini, neðst á Breiðahjallanum, uppi undir Álftahömrum, og má hamingjan vita, hvernig hann liefir komist alla þá leið. Hann er, sem betur fer, alveg ómeidd- ur, befir auðsjáanlega oltið úlaf af þreytu, og svo fast svaf hann, að hann rumsk- aði læpast, hvernig sem ég hristi hann, því færðin er orðin alveg afleit. IJess- vegna var ég svona lengi, og lof sé Guði að ég fann barnið, það er ekkert að vita hvernig farið hefði annars«. Pau afklæddu Jón litla með meslu varúð. »Sjáðu, hvað hann hefir í lófa sínum, innan i vetlingnum. Svolitla rjúpufjöð- ur«, sagði bóndi. »Veslingurinn litli, það er útlit fyrir að bann hafi ekki ætlað að týna henni«. »?eir eru þá orðnir tveir, jólagest- irnir okkar, góði minn«, mælti hús- freyja. »Hér kom maður í kvöld og baðst gistingar. Hann sefur í rúminu okkar; við skulum leggja drenginn fyrir framan hann. Legðu þig út af hjá drengjunum, en ég vaki það sem eftir er nætur; ég þarf að þerra vosktæðin ykkar, og svo er ég svo glöð, að ég held ég gæti ekki sofið«, bætti hún við og brosti hlýlega til manns síns. Jón lilli vaknaði og skimaði forviða í kringum sig. Þetta var ekki rúmið hans heima. Hér var hálf-dimt og þröngt, og hann heyrði andardrált sof- andi fólks úr öllum áttum. Sofandi maður lá fyrir ofan hann í rúminu. Hver var það? Hvar var “hann eigin- lega? Var þetta alt saman draumur, eins það, að hann hefði farið upp í fjöll og sofnaö hjá slórum, stórum steini, og orðið þar að snjókerlingu? þetta var einkennilegt alt saman. Og hvar voru nú englarnir, sem höfðu breitt tjvængina yfir hann bjá stóra sleininum og sungið jólasöngva, svo að hann var hreint ekk- eit hræddur, og litli bróðir var einn í hópuum, með hvíta skínandi vængi, og pabbi og mamma voru þar líka. Var þetta þá alt saman draumur? Var mamma veik? Var pabbi týndur, eða einhversstaðar langt í burtu frá stúf sínum? Hann néri slírurnar úr augun- um og reyndi til að horfa og reyndi til að muna. Smátt og smátt ryfjaðist ferða- lagið hans upp fyrir honum og þá mundi hann alt í einu eftir fjöðrinni. Hann lók viðbragð. Hvar var hún? Hann fór að leita að fjöðrinni undir sænginni og koddanum. Hann hafði fundið hvíta, stóra fjöður, það hlaut að vera arnarfjöður og óskastundin var í vændum. En hvað var orðið af henni? Hann leitaði betur, en fann ekkert, en stóri maðurinn fyrir ofan hann losaði svefninn og reis upp við olnboga og horfði á hann sem snöggvast. Alt í einu varð hann glaðvakandi og sagði með einkennilegri ákefð: »Hvaða barn er þetta? Hvaö heitirðu?« Jón litli hélt að maðurinn væri fok- vondur við sig fyrir að hafa vakið

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.