Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1911, Blaðsíða 69
Al.MANAK 1911.
49
'8. Þ Á T T U R
Guðmundur Jónsson, frá Sköruvík á Lang-anesi. Hann
var sonur Jóns læknis á Syðra Lóni á Langanesi. Móð-
ir hans var Guðlaug, en um ætt hennar er mjer alls ekk-
ert kunnugt. Guðmundur var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans hjet Guðrún og var Jónsdóttir. Þau eignuðust II
börn; synir þeirra voru: Ólaftir Goodman, Sigfús Good-
man, Aðaljón—dó afslysum fyrir fám árum -Árni—drukkn-
aði árið 1888,—Sophonias í Grafton, N. Dakota. Dætur
þeirra voru: Ásdís, gift Aðatmundi Guðmundarsyni í
Grafton, Margrjet,gift kona í Grand Forks;Berglaug, gift
TryggvaÓlafssynií Argyle,Þuriðr,dó ógift, tvær dóu ungar.
Guðmundur reisti bú á Syðra-Lóni,eptir föður sinn liðinn,
en bjó þar eigi lengi. Flutti hann þá að Sköruvík og bjó þar
lengi síðan. Þaðan flutti Guðmundur til Vesturheims árið
18S6, eða máske ári síðar. Sótti Ólafur sonurhans hann
heim til íslands; hefir Guðm. að líkum farið til Grafton,
en dvalið þar skatnma stund, áður hann flytti fil Calgary,
sem mun hafa verið!8S7, þó veit jeg þetta eigi víst; en
til Calgary er hann kominn vorið 1888 og búinn að festa
sjer land, suður af Tindastóll við Medicine ána. Fyrri
konu sínu missti Guðmuudur heima á Islandi, en sumar-
ið 1888, mun hann hafa giftzt í annað sinn,þó er það ekki
víst. Kona sn hjet Hólmfríður og var Jónsdóttir, Jóns-
sonar, Sigurðssonar frá Einarstöðum í Reykjadal; móðir
liennar var Helga Jónsdóttir Stefánssonar prests að
Helgastöðum. Þau hjón Guðmundur og Hólmfríður,
voru hnigin á efra aldur, og varð ekki barna auðið.
Guðmundur var merkur maður, hafði skýrar og ljósar
gáfur, var fróður um margt, vandaður og hreinskilinn.
i) EmitVt»mur hefi jejf heyrt, at skilríkuni manni, að hann ætti
clóttur Þrúði að nafni og* væri hún g’if’t Einari Kjartanssyni borgfírð-
skum að ætt.