Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Page 45
Jóhannes S. Björnson kennari.
Eftir séra Kristinn K. Ólafsson.
Islendingar í Ameríku hafa lagt sig mjög eftir kenn-
arastarfi. Þeir hafa eflaust tekið meiri þátt í þjóðlífinu á
þessu sviði en búast hefði mátt við eftir fólksfjölda.
Kensla og nám hafa auðkent mjög mörg íslenzk heimili.
Eitthvað af þeim áhrifum virðist hafa beint merkilega
mörgum að því hér á vesturslóðum að gerast kennarar.
Frá bama skólunum upp að völdustu sessum við háskól-
ana verður fyrir manni urmull kennara af íslenzkri ætt.
Það, sem mest er um vert, er að yfirleitt hafa þessir kenn-
arar getið sér hinn bezta orðstýr. Margir verið yfirburða
kennarar. Einn þeirra er langan og merkilegan feril átti
og bar merki stöðu sinnar hátt va'r Jóhannes (John) S.
Bjömson, er lézt í Chicago 25. september 1944. Það var
sem tákn þess hve kennarastarfið var honum samgróið,
að hann kendi sínar venjulegu kenslustundir síðasta dag-
inn sem hann lifði. Hann lifði allur í starfinu.
Jóhannes var, er hann endaði skeið sitt, yfirkennari
í sögudeild Steinmetz miðskólans (High School) í Chi-
cago. En auk þess átti hann að baki sér mikinn og góðan
þátt í félagslífi Islendinga í Chicago um tvo tugi ára.
Forysta hans í þeim efnum var kunn og metin af öllum
er til þektu. Hann var hafinn yfir meðalmensku í öllu er
hann tók sér fyrir hendur.
Foreldrar Jóhannesar voru þau hjónin Sigurgeir
Björnsson og Guðfinna Jóhannesdóttir. Þau fluttust til
Ameríku frá Haga í Vopnafirði árið 1876, en voru Þingey-