Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1946, Page 48
48
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Science Department). Varð hann skjótt í miklu áliti bæði
hjá meðkennurum sínum og nemendum. Prívat bókasafn
hans var orðlagt, og jók hann sífelt við það. Fylgdist
hann með afbrigðum vel með öllum markverðustu ritum
er snertu sögu Bandaríkjanna, svo fáir stóðu honum þar
á sporði. Jós hann sífelt af ferskum brunni víðtækrar
þekkingar við kensluna, og hélt þannig athygli og áhuga
nemendanna langt fram yfir það venjulega. Dæmafátt
mun vera hve margir af nemendum hans tóku ástfóstri
við hann og töldu hann sinn ágætasta kennara. Er það þó
sízt talið auðvelt hlutverk að ná tökum á æskulýð stór-
borganna. Ekkert ár leið svo hjá að hann fengi ekki ítrek-
aðan vitnisburð um trygð nemenda sinna og kærleika.
Það auðnast einungis kennurum af Guðs náð.
Frá barnæsku hafði Jóhannes tekið ástfóstri við ísl-
enzkt mál og menningu. Þó hann um langt skeið væri
fjarlægur Islendingum var trygð hans í þessu efni óbreytt.
Einar Kvaran sagði um hann er hann kyntist honum að
hann talaði gullaldar íslenzku. Eðlilega hafði hann hug
á öllu íslenzku og vildi liðsinna öllum íslenzkum velferða-
málum. Þegar hann kom til Chicago mátti heita að Isl-
endingar þar vissu varla hver af öðrum, og um félagsleg
samtök var ekki að ræða. Átti hann með öðrum góðum
mönnum mikinn þátt í því að stofna Islendingafélagið
“Vísir”, sem nú er deild í Þjóðræknisfélagi Vestur-lslend-
inga. I þrettán ár var hann forseti þess félagskapar, og
ber það vott um þann hlut er hann átti að máli um vel-
ferð þessara íslenzku samtaka. Félagið var óskabarn hans,
og persónulegar vinsældir hans voru því að miklu liði,
auk þeirra stöku alúðar er hann lagði við starfið.
Annað Islendingafélag átti hann þátt í að stofna í Chi-
cago. Mun það félag einstakt í sinni röð í sögu Vestur-
Islendinga. Ber það hið einkennilega nafn “T.N.T. &
Company”. Oftast eru um tólf meðlimir í félaginu. Fundir
eru haldnir einusinni í mánuði árið um í kring. Njóta