Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Side 38
32
intim og þokan klettinum. — Á þessum kletti
stendur K. B. F.
Það .hefir þá sannfæringu, að fulla vitneskju
um það, hváð sannur kristindómur er, veiti
Ritningin ein. Og' Biblíunnar kristindómur verð-
ur aldrei úreltur, því að um alla eilííð verður
hann eini vegurinn frá dauðanum til lífsins.
Því að aðeins í Jesú Kristi Biblíunnar kemur
Ouð til móts við mennina. Hann, sem er Frels-
ari vor og Friðþægjari, getur einn veitt oss inn-
göngu til lífsins, með því að hann gerðist stað-
göngumaður vor og tók á sig bölvun syndar-
innar, til þess að vér gætum fengið fyrirgefn-
ingu syndanna fyrir hans blóð. Því að blóð
Jesú Krists, Guðs eingetna sonar, hreinsar oss
af allri synd. Sbr. I. Jóh. 1, 7.
Þessa trú vorrar evangelisk-lútersku kirkju, ,
sem hún hefir sett fram í stuttu máli í játn-
ingum sínum, vill K. B. F. leitast við að efla og
útbreiða af ölium mætti. Það er von vor og bæn,
að oss megi auðnast að stuðla að því, að þjóðlíf
vort gagnsýrist af anda kristindómsins, að
Drottinn veki þjóðina til afturhvarfs, svo að hún
verði Guðs lýður. Og vér treystum því, að fyrir
handleiðsiu Guðs náum vér til margra einstak-
linga, sém nú sitja í myrkri efasemda og van-
trúar, en þrá ljósið, og að oss takist að veita þeim
einhverja hjálp, svo að þeir komi auga á Hann,
sem er heimsins ljós.
Þannig er þá takmark K. B. F. það sama og
takmark kirkjunnar: Að leiða menn til KristS.
Og að því takmarki .hyggst félagrö að vinna
undir merki kirkjunnar, svo sem áður hefir
J