Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Page 42
Með myndunum.
Árni Björnssori, prófastur.
hefi verið beðinn að skrifa fáein minn-
ingarorð um síra Árna sál. pófast, er mér það
mjög ljúft, aðeins finn ég, að ég get það ekki
sem skyldi.
Árni prófastur Björnsson fæddist 1. ágúst
1863. Hann ólst upp hjá föðurbróður sínum,
.merkisbóndanum Árna Sigurðssyni í Höfnum
á Skaga, sem lang mestur var bóndi í þeirri sveit
og höfðingi mikill. Foðurbróðir hans kostaði
hann til náms og þótti því fé vei varið, því
pilturinn var hinn efnilegasti og námsmaður
.góður. Hann útskrifaðist af Latínuskólanum
ái'ið 1885 og tveim árum síðar ai prestaskól-
anum. Sótti hann það sama sumar um Reyni-
staðarklausturs-prestakall og fékk það og vígð-
ist þangað um haustið 1887. Bjó hann fyrst
ókvæntur með móður sinni að Fagranesi á
Reykjaströnd. Þegar sameinaðar voru Fagra-
nesskirkja og Sjávarborgarkirkja og fluttar til
Sauðárkróks, þá flutti hann þangað og kvænt-
ist eitthvað ári síðar, Líney frá Laxamýri, Sig-
urjónsdóttur. En mciðir hans og systir voru þar
eftir hjá þeim hjónunum, það sem eftir var
æfi þeirra. Síra Árni var ákaflega ættrækinn
og reyndist þeim mæðgum, móður sinni og syst-
ur, hinn bezti sonur og bróðir. Með konu sinni
bjó hann í 38 ár, og var .hjónaband þeirra mjög
hamingjusællt á alla lund. Þau eignuðust 12
börn og dó aðeins eitt þeirra í bernsku, hin ell-
efu ólust upp í föðurhúsum, og voru bæði góð