Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Side 46

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Side 46
40 hefir hann líka sjálfur notið við elsku, traust og umhyggju safnaðar síns, sem hann hefir sýnt honum á svo margvíslegan hátt. ! þessu aðalstarfi sínu, lífsstarfinu, hefir hann fylgt þeirri reglu, að boða Krist, krossfestan og upp- risinn, og aldrei hvikað þar frá; hefir haft orð Jóhannesar skírara í huga: »Honum ber að vaxa, en mér að minnka,« og breytt eftir því, og það svo, að sumurn vinum hans hefir jafn- vel þótt hann láta of lítið til sín taka út á við, er þeir þekkja hina miklu og góðu hæfileika hans og eru sannfærðir um, að fáir eru jafn- okar hans að lærdómi og hyggindum, einnig* þeim, sem að gagni koma í daglegu lífi manna og starfi, en honum hefir allt af fundizt, sem eflaust er líka það rétta, að sér beri að helga Kristi og starfi hans meðal mannanna alla krafta sína. 15. júlí 1913 gekk hann að eiga. Áslaugu Ágústsdóttur, ættaða frá ísafirði, og hefir hún með einstökum dugnaði, ást og umhyggju létt mjög undir hið mikla og erfiða starf hans, enda er hún mjög elskuleg og góð kona og honum samhent, sem bezt má verða. 1 júlí 1924 var síra Bjarni skipaður 1. prest- ur við dómkirkjuna, þegar síra Jóhann Þorkels- son lét af prestsskap, og þeir sem til þekkja. munu á einu máli um það, að erfitt væri að skipa það sæti, er hann hafði setið, svo, að jafn vel væri setið eftir,, því um síra Jóhann má segja, að hann hafi verið elskaður af einum og sérhverjum í söfnuði sínum, en mest af þeim, sem bágast áttu; en þó mun það svo, að flest- um mun þykja sem sæti hans sje nú fullskipað og eflaust ekki þeim sízt,, sem bragða verða bik-

x

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)
https://timarit.is/publication/407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.