Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Page 52
46
dirfsku og skarpleika, svo að til hans heyrist
frá hinu minnsta hreysi til konungshallarinnar,
frá hinum einfaldasta lærisveini til hins lærða
prófessors. Allir verða þeir að hlusta á hann,
fást við hann og taka afstöðu gagnvart hon-
um. Hvað eftir annað .hefir orustugnýrinn kveð-
ið við í eyrum þjóðarinnar.. Mánuðum saman
hefir varla verið um annað talað og skrifað
en hans orð og hans skoðun á málunum.----------
Hann gerir vandamálin lifandi. Vinir og and-
stæðingar hljóta að virða sannleiksást hans og
drenglyndi í baráttunni. Hann kann að tala svo,
að til hans heiyrist, en hann hefir einnig lært
af meistara sínum að þegja, þegar hann sér
að það er rétt.
Af Guðs náð er hann orðinn þessi foringi með-
al vor, sem þúsundir og aftur þúsundir elska
og fylgja, en margir óttast jafn mikið og hata.«
(Joh. Wislöff).
íjí *
*
Geta má þess í þessu sambandi,, að Kristni-
boðssamband Islands hefir boðið Hallesby .hing-
að til lands næsta sumar, en ennþá er ekki víst,
1 hvort hann getur komið. —
G. K.
i