Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Side 58
52
hugmyndir, sem þau eiga, vantar þau siðferð- |
isþrótt.
Stanley Jones hefir tekið upp þá aðferð, fyrst-
ur manna, að reka trúboð meðal mennta- og há-
stéttamanna sórstaklega. Áður snéru kristni-
boðar sér því nær eingöngu til lágstéttanna.
Hagar hann þessu trúboði þannig, að hann held-
ur smáfundi, þar sem menn ræða saman um
trúmálin, ,hver frá sínu sjónarmiði. Hefir þetta
reynzt hin merkilegasta starfsemi, og e.t.v. borið
meiri árangur en nokkur önnur. Ræðir hann
þar við þá hæztu hugsjónir þeirra eigin trú-
arbragða og sýnir þeim fram á„ hvar þau nema
staðar — en að þar bæti Kristur ávallt við j
því, sem á vantar, að þau fái fullnægt tilgangi
sínum. »Því að,« segir hann, »Kristur kom ekki
til að niðurbrjóta nokkurn þann sannleika, sem
nokkurs staðar er til. — Hann felur allan sann-
TJeákann í sjálfum sér. — En hann gerir miklu
meira en að rífa ekki niður, Hann fullkomnar,
Hann skapar. Hann veitir allt það gott, sem
fundizt getur annars staðar, en æfinlega með
æinhverju fram yfir. Hann er meira en öíl sann-
leikskornin samanlögð. Umhverfis Mannssoninn
•:geta öll mannanna börn safnazt saman og' fund-
ið í honum bróðurbandið.«
Með því að boða þannig kristnar hugmyndir,
hefir hann komist að raun um, að þær verka
■eins og súrdeigið og að margir ókristnir menn
hafa tileinkað sér þær, að meira eða minna leyti,
þó að þeir hafi enn ekki opinberlega gerzt kristn-
ir, og hann trúir því, að þær muni þannig sigra
með hægfara þróun og að sú kristni, sem þann-
ig kemst á, muni reynast haldbetri heldur en
sú, sem komið er á með lagafyrirmælum eða
ofbeldi eins og átti sér stað í Evrópu.
I