Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Síða 68
62
ar í tveim deildum: Aðaldeild (stúlkur 17 ára og eldri),
Yngri deild (12—17 ára). Stjórn þess skipa: Frú Guð-
rún Lárusdóttir (formaður), frú Emella Sighvatsdótt-
ir (gjaldkeri), frú Aslaug Agústsdóttir (ritari), frú
Guðlaug R. Arnadóttir, frú Unnur Erlendsdóttir, frú
Puríður Pétursdóttir og ungfrú Porhildur Helgason.
Félög þessi starfa einnig á þessum stöðum á land-
inu: Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Garði í Gerða-
hreppi, Þingeyri í Dýrafirði og Sauðárkróki. Félögin
í Hafnarfirði og Vestmannaeyjum eiga hús yfir starf-
semi sína. Félagið í Hafnarfirði á einnig sunmarbústað
í Kaldárseli.
Kristnlboðsfélög eru sex á landinu. Tvö eru í Reykja-
vík (karla og kvenna). Form. Stefán Sandholt, bakara-
meistari, og frú Anna Thoroddsen. Tvö eru á Akur-
eyri (karla og kvenna). Form. frú Jóhanna Þór og
Friðgeir Vilhjálmsson. Eitt í Hafnarfirði, formaður
Björn Arnason. Eitt á Vatnsleysuströnd, form. frú
Margrét Jónsdóttir. Ennfremur er kristniboðsdeild
innan K.F.U.M. og K.F.U.K. i Vesmannaeyjum, Sömu-
leiðis styrkja nokkur kvenfélög kristniboðsstarfið.
Kristniboðsfélögin hafa landssamband, og skipa stjórn
þess: Sigurbjörn A. Gíslason, Rvík (form.), ungfrú
Halldóra Einarsdóttir, Hafnarf., (ritari), og Hróbjart-
ur Arnason, Rvík, (gjaldkeri).
Verksvið þessara félaga er aðallega kristniboð með-
al heiðingja, og kosta þau hinn fyrsta og eina kristni-
boða frá Islandi, ólaf ólafsson í Kína.
Sunmidagaskólar eru á þessum stöðum: Akranesi,
Borgarnesi, Eskifirði, Grindavík, Hafnarfirði, Höfnum,
Sandi, Vestmannaeyjum og Reykjavík. Eftir síðustu
skýrslum, sem til eru um starfsemina, voru 60 kenn-
arar og 1912 börn í þessum skólum. Nú i haust hafa
bæzt við i Reykjavík fjórir barnaguðsþjónustuflokkar.
Sjómannastofnr starfa á þessum stöðum: Reykjavík