Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Qupperneq 88
82
Jónsson, Stóradal, Sigurður Bjarklind, Húsavík, Por-
steinn Jónsson, Reyðarfirði. Forstjóri: Sigurður Krist-
insson. Framkvæmdastjóri útflutningsdeildar: Jón Arna-
son. Innflutningsdeildar: Aðalsteinn Kristinsson. Fram-
kvæmdastj. I Kaupmannahöfn: Oddur Rafnar, 1 Ham-
borg: óli Vilhjálmsson og i Leith: Sigursteinn Magn-
ússon.
Verzlnnarráð islanðs. Stofnað 1917 með þeim til-
gangi, »að vernda og efla verzlun, iðnað og sigling-
ar« eftir því sem nánar er tiltekið I lögum ráðsins.
Stjórn: Garðar Gislason (form.), Carl Proppé (vara-
form.), Jes Zimsen, Jón Brynjólfsson, Rich. Thórs,
Haraldur Árnason, Hallgr. Benediktsson.
Ellihcimilið Grund stendur við Hringbraut og er
stofnað 29. okt. 1922. Rúmar það 112 gamalmenni.
Stjórn: Sigurbjörn Á. Gíslason cand. theol. (form.)
Haraldur Sigurðsson (gjaldkeri), Flosi Sigurðson tré-
smiður, Júlíus Arnason, kaupmaður, og Páll Jónsson,
verzlunarmaður.
Alþýðubókasnfnið í Reykjavík tók til starfa 19. apríl
1923. Hefir það lestrarsal fyrir fullorðna og lesstofu
fyrir börn; lánar það út bækur til manna í bænum og
einnig sérstaka skápa með bókum til skipa. Bókavörður:
Sigurgeir Friðriksson. — Annars eru bókasöfn í öllum
kaupstöðum landsins og mörgum kauptúnum, sömuleið-
is í sýslum og hreppum (lestrarfélög).
Dýrnvemdunarfélagið er stofnað 13. júll 1914. »Til-
gangur félagsins er að vernda skepnur gegn illri með-
ferð og vekja hugsun almennings til skynsamlegrar
og nærgætnislegrar meðferðar á þeim.« Félagið á hús-
eignina Tungu við Laugaveg. Það gefur út blaðið:
»Dýraverndarinn«. Formaður Þorleifur Gunnarsson.
Fcrðafélag fslands er stofnað 1927. Tilgangur félags-
ins er, að örfa menn til ferðalaga og leiðbeina og gefa