Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Síða 90
84
tilgangi, »að reyna að styðja að almenningsgagni, að
svo miklu leyti sem kraftar félagsins leyfa, einkum
þó því, sem komið getur kvenfólki að notum.« Hefír
félagið starfað allmikið að góðgerðastarfsemi. For-
maður: Frú Ragnheiður Clausen.
Hjúkrunarfélagið Líkn er stofnað 3. júni 1914. Til-
gangur félagsins er, að veita einstaklingum eða heim-
ilum ókeypis hjúkrunarhjálp í veikindum, þar sem
þörf þykir fyrir, án tillits til þess, hvort sjúklingur-
inn eða heimilið nýtur styrks úr fátækrasjóði. Auk
almennrar hjúkrunar, hefir félagið sett á stofn: Hjálp-
arstöðina Líkn, fyrir berklaveika, og Ungbarnavernd
Líknar (veitir hjúkrun og næringu, mjólk og lýsi,
ungbörnum innan 2ja ára ókeypis). Formaður: Frú
Sigríður Eyvindsdóttir.
Hrlngurlnn, kvenfélag, stofnað 26. jan. 1906. Til-
gangur félagsins er, að veita hjálp berklaveiku fólki.
— Merkasta starfsemi félagsins er Hressingarhæli
þess í Kópavogi, sem tekið var til afnota 14. nóv.
1926. Hefir það rúm fyrir 25 sjúklinga og auk þess
ólteypis rúm fyrir eitt barn (dánargjöf M. Hansen).
Formaður: Frú Kristín Jacobson.
Flsklfélag islands er stofnað 1911, »til þess að styðja
og efla allt það, er vera má til framfara og umbóta
I fiskiveiðum íslendinga, i sjó, ám og vötnum, svo
þær megi verða sem arðvænlegastar öllum, sem hafa
atvinnu af þeim, og landinu í heild sinni.« — Félagið
hefir aðsetur I Reykjavík, en deildir víðsvegar um
landið. Það safnar aflaskýrslum, hefir námskeið fyrir
fiskfmenn, aflar og veitir fræðslu um söluhorfur á
sjávarafurðum, gefur út mánaðarblað og almanak fyr-
ir sjómenn m. m. Einnig hefir það erindreka í öll-
um landsfjórðungunum. — Forseti: Kristján Bergsson.