Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1932, Blaðsíða 92
86
■entum. 1913 fékk skðlinn prófréttindi. Til þessa hafa
400 stúdentar tekið embættisprðf þaðan, og nú sem
stendur eru nemendur skðlans 285. Haustið 1930 inn-
rituðust um 30 nýir stúdentar í Safnaðarhúskólann,
en aðeins tveir 1 guðfræðideild Húskðlans, þar sem
nýguðfræðin hefir völdin.
Við Safnaðarháskólann eru nú sex aðalkennarar og
fjórir aukakennarar; þekktastir eru Dr. O. Hallesby,
próf. K. Vold og Dr. O. Moe.
*
Fræði Lúthers, hin minni, hafa verið þýdd á 142
tungumál.
*
Arið 1922 voru 83,700 Gyðingar búsettir í Palestínu,
en nú eru þeir taldir, samkv. síðustu skýrslum, 175,000.
Á sama tlma hefir Aröbum fjölgað þar um 150,000.
*
Svo telst til, að nú játi 90,600 manns í Palestínu
kristna trú, er það nál. 20,000 fleira en fyrir tíu árum.
4=
Hinn 31. ágúst s. 1. var almyrkvi á sólu. Hann sást
A ýmsum stöðum í Ameríku og stóð yfir í 98 sekúndur.
Hann var einn hinna sex almyrkva á sólu, sem vér
höfum greinilegar sögur af. Hinn fyrsti almyrkvi á
sólu, sem vér höfum nokkrar skýrslur um, sást í Kína
árið 2137 f. Kr. Annar átti sér stað árið 763 f. Kr.
Hinn þriðji þeirra sást árið 585 f. Kr. Medar og Persar
áttu þá í stríði, en við þenna atburð urðu þeir svo
skelkaðir, að þeir hættu að berjast og lauk með
þvl stríði, sem staðið hafði yfir I 5 ár. Fjórði sól-
myrkvinn kom árið 1780, þegar ameríska byltingin
stóð yfir, og hinn fimmti sást I Italíu árið 1842. Hann
var svo furðulegur, að mannfjöldinn laust upp fagn-
aðarópi, er þeir sáu sólkringluna gersamlega hverfa.
*