Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 15

Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 15
15 StaÖhættir eru opt niikill þröskuldur i vegi, en opt og einatt er orsökin meðfram gamall óvani og hirðu- leysi af hálfu prestanna. Jeg veit að þetta eru Þung orð, en jeg tala hjer ekki út í bláinn. Þess eru dæmi og þau ekki sjerlega fá, að prostar spyrji fermingarbörn að eins einu sinni, eða þá ekki fyr en í vikunni fyrir ferminguna. Og jafnvei þótt þetta sjeu fremur undantekningar, sem betur fer, er það auðsætt mál, að börn, sem ekki hafa fengið aðra kennslu en mjög ófullkomna tilsögn heima hjá sjer við og við, og lært kverið sitt eins og þulu, þegar Þau þá kunna nokkuð í því, — eins og óhætt er að segja um fjöldamörg sveitabörn enn í dag, — fá ekki mikla varanlega fræðslu, og verða því síð- ur fyrir varanlegum kristilegum áhrifum, jafnvel Þótt prestarnir spyrji þau 10 eða 20 sinnum fyrir ferminguna. Hjer þurfa að verða mikil stakkaskipti, ef kristindómsfræðslan á ekki að lenda öll í höndum einhverra barnakennara, sem engin trygging er fyrir uð trúi nokkru orði i ritningunni. Danskir prestar sPyrja fermingarbörn æði mikið optar, þótt þau hafi gengið áður optast 6 ár í skóla með eptirliti prests- ius. fess er og dæmi hjer á landi, að prestur spyr börnin allt sumarið eptir messu; því reyna ekki fleiri að gjöra það?------ En það er engínn hægðarleikur að kippa þessu f Þig, nema veruleg samvinna geti komizt á milli Pi'estsins og heimilanna i þessu efni. Staðháttum

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.