Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 20

Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 20
20 um til hjálpar, aðstoðar, huggunar og áminningar. Það or í því fólgið, að trúaðir menn sjou í lifandi sambandi, sjeu einn líkami, þar sem hver einstak- lingur er sjerstakur limur með sjerstöku ætlunar- verki og ábyrgð; limur með sínu lífi, en jafnframt þörf á öðrum, af því, að líf allra limanna er frá sömu uppsprettu og samá eðlis. — Það er í því fóigið, að allir myndi heilagt bræðrafjelag, þar sem enginn fer eingöngu eptir sínu höfði, en leitar ráða og aðstoðar bræðranna, hlustar á aðvaranir þeirra og skipast við áminningar þeirra. — — Enginn ó- kunnugur getur ímyndað sjer fylliiega, hvað þetta samfjelag er mikilsvert. Þaj- kynnast Guðs böm, leiðbeina hvert öðru, biðja hvert fyrir öðru og unna hvert öðru. Hikandi menn verða þar einarðir, hálfvolgir heitir, leitandi menn finna þar úrlausn vafaspurninganna, og andvaraleysingjarnir, sem á horfa, fá samvizkusting. Þar er skjaldborg og bak- hjallur trúaðra presta, og einherjar kirkjunnar. Slikt samfjelag trúaðra er því miður óþekkt víðast hvar hjer á landi, en í flestum öðrum evan- geliskum löndum er það algengt, og er þá miðstöð allrar kristilegrar starfsemi innan kirkjunnar. Og þar er víðast litið svo á, að það sjeu ekki lægnir prestar, sem geta ekki fengið kristna kjarna safnað- arins í samvinnu við sig. Einhver kann að spyrja: „Hver á að gang- ast fyrir þessum fjelagsskap? — Presturinn á að sjálfsögðu að gjöra það, sje liann fær um það, eöa

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.