Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 34

Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 34
34 um mig hvað sem þjer viljið, og það er ekkert rangt í því áliti ykkar, að jeg er úrþvætti, ónýtur til alls annars en þess að drekka og blóta, ragna og. formæla. En jeg skal segja ykkur nokkuð: Hefði jeg gefið gaum að því, er þessi bók segir, þá væri jeg í öðrum fjelagsskap í kvöld, — og í öðr- um fötum líka“. „Jeg man,“ sagði haun, — og hann talaði hratt og með lágri, hásri röddu, líkara því, að hann væri að tala við sjálfan sig en aðra. „Já, aldrei gleymi jeg því, hvernig hún móðir mín sat við rúmið okkar á kvöldin, við rúmið mitt og hans bróður míns, og var að lesa fyrir okkur í biblíunni, og að segja okkur sögur úr lienni, þangað til við urðum svo hrifnir, að okkur vöknaði um augu, ýmist af gleði eða sorg. Aldrei gleymi jeg, — þótt gjörspilltur sje jeg, — þeim söngvum, er hún söng fyrir okkur og kenndi okkur að syngja, þangað til við sofnuðum við sönginn". „Jeg man enn þá,“ hjelt hinn ógæfusami maður áfram, „eptir þeim degi, er Davíð fór að heiman með blessun móður okkar, til að leita sjer atvinnu einhvers staðar út í víðri veröld. en jeg varð aleinn eptir hjá móður minni. Og jeg hefi enn ekki gleyrnt fyrsta skiptinu1',— það kom kjökurhljóð í rödd gamla mannsins, en hann herti sig upp, rjett eins og hann skammaðist sin fyrir veikleik sinn, og vildi hylja hann, — „já, fyrsta skiptinu, fjelagar, er jeg var í fjelagsskap, likum þessum hjer inni, og

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.