Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 44

Heimilisvinurinn - 01.03.1905, Blaðsíða 44
44 stóð á borði við nímið og tók lok af henni; það var kjötbiti og fáeinar kartöflur í henni, „Matty kom inn með þetta áðan“, hjelt hún áfram, „en jeg þarf þess ekki, pabbi; jeg flnn ekki framar til hungurs". Faðirinn greip skálina græðgisiega og fór að sioka í sig matinn. „Jeg þakka þjer fyrir, Jenny“, sagði hann þeg- ar hann var búinn. — „Þú heflr þó vist enga pen- inga, Jenny?“ spurði hann í hálfum hljóðum og beygði sig ofan yfir sjúklinginn. Hún hristi höfuðið með sorgarsvip. „ Jeg á engan skilding, pabbi, En jeg vona að jeg geti selt þetta, sem jeg er að vinna í kvöld; Matty hefir iofað mjer, að selja það fyrir mig“. „Hvað mikið heldurðu að þú fáir fyrir það?“ spurði faðirinn með áfergju. Hún nefndi einhverja upphæð. „Það er allt of lítið, Jenny. Þeir pretta þig, af því þú getiir ekki verzlað við þá sjálf. Láttu mig nú fá það — jeg skal fá meira fyrir það, máttu trúa“. „Nei, pabbi, nei,“ svaraði sjúklingurinn án þess að litaupp; „þú mátt ekki fá það; það mundi leiða þig í freistni". En faðir hennar hrifsaði heklið úr hendi henn- ar. „Jeg er að segja þjer, að jeg ætla bara að reyna að fá meira fyrir það en þú get.ur fengið. Það er þó víst líka jeg, sem öl önn fyrir þjer, hjelt jeg“.

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.