Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Blaðsíða 4

Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Blaðsíða 4
4 og þegar fram liðu stundir og þau eignuðust börn, lögðu þau alla rækt við að mennta þau sem allra bezt. Ramabai var yngsta dóttir þeirra. Hún var gáfuð og bráðþroska. Hún las þegar á unga aldri bækur hinna lærðustu Brahmina, og þegar hún var 12 ára, kunni hún 1800 vers úr „Púranas", sem talin er heilög og „hávísindaleg" bók meðal Brahmina. Faðir hennar vildi ekki gipta hana nein- um meðan hún væri barn, af því að hann sá, hvað „barna-hjónahöndin“ voru varasöm. Ananta var auðugri að fróðleik en að pening- um, enda var hann mjög gestrisinn við þá, sem komu að hlýða á lærdóm hans. Árin 1876—77 varð ógurlegt hnllæri á Suður-Indlandi; og þá flosn- aði Ananta alveg upp, seldi jarðir sínar í skuldir og hjelt að heiman með konu og börnum. Ramabai hefir lýst högum þeirra þessi ár í bók sinni: „Hungurs raunir", og segir þar meðal annars: „Áður en hallærið mikla, í Madrasfyikinu komst í algleyming, var það í aðsigi í 3 ár. Jeg var bæði ung og ókunn veröldinni í kringum mig, svo mjer varð það ekki full-ijóst þegar í stað, þótt jeg yrði vör við mikia fátækt bæði heima hjá mjer og hjá sumum nágrönnum vorum. Æðstu erfðastjettirnar áttu erviðast þá eins og enn í dag, þeim þótti minkun að því að vinna með höndum sínum og þá ekki siður að betla. — Faðir minn var jarðeigandi og velmetinn kennari,

x

Heimilisvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.