Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Page 5

Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Page 5
5 og hafði nóg fyrir sig og sína, en þegar hann var orðinn gamall, heilsulítill og loks blindur, missti hann eignir sínar á ýmsan hátt. Við systkinin höfðum ekki lært neitt starf, er við gætum unnið fyrir okkur með, okkur vantaði ekki þekkingu til bókarinnar, en drambsemi og hleypidómar ættar vorrar komu í veg fyrir að við færum að starfa eitthvað til að vinna fyrir foreldrum vorum. í stuttu máli: okkur vant.aði heilbrigða skynsemi, og í stað þess að vinna fyrir okkur, eyddum við fjár- rnunum okkar i ölmusu gjafir handa Brahminum til þess að þóknast goðunum, sem við væntum að mundu þá og þá láta rigna gulli niður til vor. Við heimsóttum helga staði og musteri, ákölluð- um ýmsa guði, böðuðum okkur í ýmsum heilögum fljótum og tjörnum, til að frelsa oss frá þeirri eymd og ógæfu, sem hafði steypt okkur í fátækt. Við vörpuðum okkur að fótum fánýtra goða, áköiluðum Þau dag og nótt um að veita okkur gæfuna. Hinn elskaði bróðir minn, efnilegur maður rúmlegatvítugur, spillti heilsu sinni á föstum og meinlætalifnaði, en allt varð árangurslaust. Betur að við hefðuni þá sjeð fávizku skurgoðadýrkunarinnar. Við höfðum að sönnu lesið í Vedanta, að við dýrkuðum ekki líkneskjurnar, heldur einhver goð, sem þær táknuðu. En þessi „æðri þekking" vor kom oss að engu haldi. Við litillækkuðum okkur fyrir skurðgoðunum eins og aðrir Brahmatrúar- inenn þúsundum s^man. Við bjuggumst árangurs-

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.