Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Page 48

Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Page 48
47 Mukti er á ófrjórri hásljettu og hefir því þurft mikinn dugnað til að rækta landið umhverfis. Sharadan hefir ekki vaxið að mun síðustu árin; en i Mukti, þar sem Ramabai á heima nú, er allt af verið að færa út kvíarnar. Er þar nú komið vænt þorp með 3000 íbúum. í miðju þorpi er kross- kirkja, sem rúmar 2700 áheyrendur. Ramabai og útlendar kennslukonnr prjedika þar á sunnudögum, en á virkum dögum er þar skóli, og er þá Manór- ama skólastjóri, hún er nú orðin prýðilega mennt- uð. Sjerstakt hús er þeim ætlað, sem heiðnar eru og enn semja sig að stjetta siðum sínum, en þeim fækkar stöðugt. Kirkjan er nærri full á hverjum helgum degi, og um 300 taka. þátt i morgunbæn- um kl. 4V2 f. h. — Eitt stórhýsið er ætlað mun- aðarlausum drengjum. Þar býr ensk trúkona og ræður yfir 125 drengjum 10—16 ára gömlum, þeir hjálpa til við ýms dagleg störf og læra margt þarf- legt. Dönsk stúlka, ungfrú Sörensen frá Lemvig, or forstöðukona útsaumsdeildarinnar, og önnur gæt- ir 60 vefstóla i vefnaðarstofunni. — Annars eru einar 6 kennslukonurnar útlendar, hinar allar ind- Verskar. Konur gegna hjer öllum þýðingarmestu störfunum, að því fráteknu að skrifstofustjórinn hjá Ramabai er roskinn Brahmini, sem snerist. fyrir uokkrum árum, og heitir Gatre. „Það er vand- íundinn alúðlegri og betri maður“, segja þeir, sem Þekkja hann. Það eru ekki smáræðis peningar, sem þarf til

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.