Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Qupperneq 49

Heimilisvinurinn - 01.07.1905, Qupperneq 49
48 þessara stofnana, — „stórvöxnustu kristniboðsstöðv- anna, sem jeg hefi sjeð“, segir Hermann Jensen, —• og meginþorri þeirra eru frjálsar gjafir kristinna manna víðsvegar um heim. „En, hver sem gefur fátækum, skal ekkert bresta“. — — Vantrúarmenn, sem trúa varla öðru, en að taumlaus eigingirni sje rikasta afl í lífi allra, segja stundum að kristniboðsfjelögin sjeu fjeglæfrafjelög, og þeir fáu, sem trúa þessu, fara svo stundum sjálfir af stað tii að afla sjer peninga undir yflrvarpi trúarinnar, en þeir græða litið á þvi. Úlfurinn segir fljótt til sín, og þá sinnir þeim enginn. Og einmitt, vegna þessara vantrúuðu hræsnara eru trú- aðir menn almennt mjög varkárir, þegar ókunnir menn eiga hlut að máli. Fjeglæframennirnir ættu þvi aldrei að halla sjer að kristniboði, samgöngurn- ar eru of greiðar til þess að ósannar skýrslur borgi sig. Margir kristniboðar hafa fúsir iátið eignir, heilsu og lif tii útbreiðslu riki Drottins. Sýnilegi á'-ang- urinn heflr verið misjafn. En mestur verður árang- urinn optast nær, þegar innlendir dugnaðarmenn snúast algjörlega og beita sjer fyrir kristniboðið. Reynzla siðari ára sannar það greinilega. En alstað- ar kemur það greinilega í ljós, að iifandi kristin- dómur er sterkasta hfsaflið í heiminum, en syndin eða vantrúin er glötun þjóðanna.

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.