Dýravinurinn - 01.01.1885, Qupperneq 3
Formáli.
1 ýraveriidunarfjelag danskra kvenna er eitt aí þeim fjelögum, sem
stofnuð hafa verið til þess að vernda dýrin gagnvart illri meðferð. Margir menn
fara illa með dýr. Sumir þjá þau af mannvonzku, af því þeir liafa ánægju af
því, að sjá þau pínast; sumir kvelja þau af eigingirni, þegar þeim finnst að þeir
geti fiaft fiagnað af að brúka þau miskunarlaust eða spara fóður við þau; sumir
fara illa með þau af fiefndarfiug og í reiði, og sumir af leti, fiirðuleysi fiugsun-
arleysi, vanþekkingu eða gömlum vana. Dýrin hafa meiri tilfinningu fyrir góðu
og vondu atlæti en flestir fialda. f>au eru sjálf varnarlaus gagnvart grimmdar-
fullri meðferð mannanna. þau geta ekki mælt og ekki kært fyrir dómstólmann-
anna þó illa sje með þau farið. Að fara illa með þann, sem er minni máttar og
varnarlaus, ber ávallt vott um fiarðýðgi, siðleysi og samvizkuleysi. Góður maður
og samviskusamur fiefur viðbjóð á slíku. Af dýrunum fiöfum vjer margvíslegt
gagn, af þeim fáum vjer föt og fæðu. þeim mtm meira gagn, sem þau gjöra
oss, og því meira, sem þau eru komin upp á vora umfiyggju, þeim mun lastverð-
ara er ill og fiarðýðgisleg meðferð á þeim.
Tilgangur dýravei'ndunartjelaga er sá, að vekja fijá mönnum andstyggð
á illri meðferð á dýrum og enn fremur að velcja velvild til þeirra, og tilfinning
fyrir því að menn fiafa siðferðislegar skyldur gagnvart dýrunum.
Dýraverndunartjelag danskra kvenna fietur þegar gefið út bækur á
dönsku í þessum tilgangi, og vildi eiunig koma sínum mannúðarfullu tilraunum
til Islands, fiafði það því i ráði að láta koma út nokkuð á prent um þetta efni á
íslenzkri tungu.
þegar jeg heyrði þetta, þótti mjer mjög vænt um það; jeg fiafði lengi
óskað, að eptirtekt manna á Islandi væri vakin á því, að meðferð á dýrum þar
þyrffci að vera betri, ennúásjer stað; og að meiri filífð, velvild og meðaumkvun
við sltepnur væri innrætt landsmönnum, en fiingað til fiefur almennt verið sýnd.
Út úr þessu liefur svo samist, að Dýraverndunarfjelag danskra kvenna
gefur þjóðvinafjelaginu bók þessa, móti því, að það leggi lítið eitt til útgáfunnar,
og fiafi kostnað og umsjón fyrir útsending bókarinnar.