Dýravinurinn - 01.01.1885, Síða 11
5
Mirza.
ndarlegt er það, hversu margir liaía óbeit á köttum og
halda, að þeir sjeu illir og ótryggir. þri hefur líklega
heyrt margar sögur um, að kötturinn sje ótryggur, að
aldrei megi treysta ketti og þess háttar?
En í slíkum sögum er mesti óhróður. Kötturinn
klórar auðvitað harnið, þegar það rífur í rófuna á hon-
um, og hann blæs og hvæsir að barninu, þegar það
skellir hurðinni á rófuna á honum. En vjer mennirnir
verjum oss lika, þegar á að' gjöra oss mein, og barnið
getur vel látið vera, að fara illa með köttinn. Vertu
góður við kisu, og þá skaltu sanna, að það er gaman að
leika sjer við hana. Gefðu henni dálítinn nýmjólkurbolla á ákveðnum tíma á
hverjum degi, og þá skaltu vita til, hún kemur ávallt á sama tíma, eins og hún
væri kölluð, hún þakkar þjer með því að mala af gleði fyrir þig, og hún veröur
þjer góð og trygg.
Svo er um fiesta ketti. En það, sem jeg reyndar ætlaði að segja þjer,
er smásaga um kisu, sem hjet JSlirza. Nú er þessi köttur fyrir löngu dauður,
og stúlkan, sem honum þótti svo ógnarlega vænt um, og sem hann frelsaði úr
lífsháska, var orðin gömul kona, þá er hún sagði mjer söguna suður á Ítalíu
fyrir 23 árum síðan. Jeg veit eigi, hvort þessi kona lifir enn, en það veit jeg,
að ættfólkið liennar heldur sögunni um Mirzu á lopti.
Um daginn sat jeg og horfði á lagiegu litlu myndina, sem er hjerna,
og þá datt mjer í hug, að hiin Mirza hennar Rafaéllu hefði líklega verið nærri
því eins að litliti.
En það er víst bezt að jeg byrji á upphafinu.
þú veizt líklega, að í þeim löndum, þar sem eru straumharðar stórár,
þar koma opt stórfióð í þær á vorin; þessi fióð geta opt verið mjög hættuleg,
einkum fyrir fátækt fólk, sem ekki býr í stórum steinhöllum, heldur í litlum og
ljelegiun kofahreysum. Menn hugsa eigi mikið um húsin í suörænu löndunum;
því að veðrið er hlýtt, og menn lifa rneira undir berum himni, heldur en inni í
húsunum. Ef einhver á kastaníutrje eða olíutrje og fáeina vinviði í garöi sín-
um, ef einhver hefur efni á að kaupa sjer máltíð af makrónum við og við, þá
er hann talinn efnamaður. þetta þóttist Aníelló — hann var ungur ferjumaður
við Aniófijótið eða Teveróne, sem það og er kallað — einnig vera, og þó hafði
liann ekkert í tekjur, nema þá Bajochi (skildinga), sem hann fjekk í ferjutoll
1*