Dýravinurinn - 01.01.1885, Side 15

Dýravinurinn - 01.01.1885, Side 15
9 voru mjög góðir við litlu stúlkuna, sem frelsaðist í vöggunni, enda var það ætl- un manna, að María mey hjeldi verndarhendi yfir henni öðrum fremur. Teresa móðir hennar hafði saumað nafnið liafaiilla í föt liennar og vögguteppi, og því gat hún haldið nafninu. En hún mátti líka hafa köttinn hjá sjer, oghannfjekk líka að halda sínu nafni, því að Mirza var saumað á rautt silkiband, sem aum- ingja Teresa hafði sett á köttinn til prýðis. Hvernig sem leitað var að ferjumanninum og konu hans, foreldrum Rafaéllu, fundust þau eigi, og því urðu menn að ætla, að þau myndu hafa hrakið ofan eptir Aníó-fijótinu xxt í Tíber og svo ofan eptir henni til hafs. þegar þetta var orðin ætlun manna, skutu menn fje saman Rafaellu til uppeldis. Nunnur nokkrar góðsamar kenndu henni alls konar hannyrðir og útsaum; og varð hún svo mikil liannyrðakona, að liún varð á unga aldri þjónustumey hjá göfugri höfðingjakonu, og lifði liún og Mirza hjá henni eins og blórn í eggi. þegar hún var tvitugj giptist hún efnuðum víngarðsmanni í nánd við Terni. þar hef jeg heimsótt Rafaellu og heyrt liana segja söguna um það, hversu Mirza hafði frelsað liana á dásamlegan hátt. „Mirza skipti sjer eigi af nokkrum manni nema mjer“, sagði hún, þeg- ar hún var að enda söguna og stundi við, „en yður þykir liklega vænt um ketti, heillin góð! fyrst þjer hafið hlustað á mig með svona mikilli þolinmæði?“ „Mjer þykir vænt um allar guðs skapaðar skepnur“, sagði jeg brosandi, „og jeg trúi því fyrir fullt og fast, að hvert dýr hafi einhverja þýöingu og muni gjöra eitthvert gagn í heiminum. Móðir yðar var góð við köttinn, sem lá hjá yður í vöggunni, og þá hefur hana sízt af öllu grunað, að hún einhvern tima myndi frelsa barn hennar. En þetta gerði Mirza þów. Jeg þakkaði frú Rafaéllu fyrir sögu hennar, og síðan hjelt jeg áfram ferð minni til fossanna við Terni, sem jeg ætlaði aö fara að sjá. Benedicte Arnesen-Kall.

x

Dýravinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.