Dýravinurinn - 01.01.1885, Side 17

Dýravinurinn - 01.01.1885, Side 17
11 Og hjartarkollan hoppar fram hjá, lítur vinalega til okkar. eins og hún ætli að segja: „Jeg bið að heilsa Hirti gamla“. Hún kannast við, að hann er beinskeytur karlinn. Svo beygjum vjer út úr skóginum inn á akraveginn, og getum sjeð tvær mylnur langt í burtu, sem jafnan kepptu hvor við aðra um kornið, sem átti að mala, og tígulsmiðjuna, sem ávallt rauk á. f>á mætum vjer skólabörnun- um með eyrnaskjól og hrossalega trjeskó. |>au ganga alldjarílega, eins og þau sje að hugsa: „Mjer er sama um reyrprikið þitt, skólameistari, og hirði eigi um pálmastikuna, því að nú þurfumvið eigi að fara í skólann í næsta hálfa mánuðinn11. Yjer drengirnir hlæjum og spjöllum og erum svo glaðir og gamansamir, að Jón fer líka að gera að gamni sínu, þótt alvörugefinn sje. Og vjer hugsum hvorki um himin nje jorð; því að nú er Skógarfriður, þar sem Hjörtur býr, eigi nema hundrað faðma í burtu. Sólin glampar á stofugluggunum og snjóugum hjartarhornum yfir dyrun- um, og Hjörtur gamli stendur í hliðardyrum á húsinu, herðabreiður og rjóður í kinnum, með hvíta kampa, á stígvjelum, sem voru utan yfir buxunum, grænleit- um frakka með silfurhnöppum og silfurborða um húfuna — svona eins og má ímynda sjer þreklegan og karlmannlegan skógbtia. }>aö er eins og jeg sjái hann, þegar vjer vorum að koma, taka pípttna, sem hann aldrei skildi við sig, út úr mttnninum, og það er eins og jeg heyri blessaðan málróminn í honum, þegar hann var að heilsa, eins og vant var: „þar eruð þið komnir drengir góðir. Sælir og blessaðir. Velkomnir á Skógarfrið, þið megið vera til Mikaelsmessu!u — Svo stöðvast vagninn; pilthnokki kemur með stiga, en vjer þurfum hans eigi 'til að geta komizt ofan úr vagninum; bústýran gamla, jómfrú Guðríður, kemur út úr eldhúsinu, uppdubbuð til virðingar við okkur með hvítt brjóstaspeldi og rauð bönd á húfunni, hneigir sig og brosir út tuidir eyru, þá er karlinn segir, „Priðrik! viltu eigi gefa jómfrúnni ofurlítinn koss? þú skalt bráðum fá að sjá að hún hefur sjeð um, að þú mættir verða óneyddur hjer um jólin, og þig skyldi hvorki vanta jólabrauð eða annað þess konar góðgætiu. Já! það voru sannarlega góðar viðtökur, sem vjer fengutn! Hjörtur gamli hafði aldrei kvænzt. Hann, jómfrú Guðríður og Jón vagnstjóri voru aðalntennirnir á heimilinu. j>au höfðtt verið saman í mörg ár, og kom þeim mjög vel' saman; það, sem eitt þeirra vildi hafa, vildu hin bæði. Guðríður og Jón voru hjú hjá Hirti, og báru þau mikla virðingtt fyrir honum, eins og vera ber, þó að hann væri miklu framar gagnvart þeim sem vinur og faðir, heldur en sem strangur og liarður húsbóndi. Eptir höfðinu dansa limirnir. Sami friður, sem var milli þessara þriggja, var og milli vinnu- kvennanna, vinnumannanna og vikadrengsins. Vikadrengurinn var allan liðlang- an daginn að blístra við verk sitt, og því sagði Jón vagnstjóri stundum, að það mundi eiga fyrir honum að liggja að komast i herinn og verða pipublásari. Jón kvaðst sjálfttr hafa verið í hernum og verið í miklu áliti fyrir skeggið og margt

x

Dýravinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.