Dýravinurinn - 01.01.1885, Page 29

Dýravinurinn - 01.01.1885, Page 29
23 Gleym eigi fuglunum. i rengur nokkur, sem lijet Ólafur, gekk einu sinni kaldan vetrardag með systur sinni, er Anna kjet, úr þorpinu, þar sem þau áttu lieima, upp til mylnunnar, og bar livert þeirra oíurlítinn poka með korni í, er þau voru send með til mölunar. f>á er þau komu að garði malarans, s'á Anna nokkra smáfugla, sem hoppuðii grein af grein, og sem voru auðsjáanlega bæði dauðkaldir og sársvangir. Hún kenndi i brjóst um þá og kastaði nokkrum lúkumafkorni til þeirra. Ólafur bróðir hennar sneipti hana fyrir þetta, og sagði, að hún væri mikið flón að fara svona illa með kornið, að fieygja þvi í fuglana; og þegar hún kæmi heim með minna mjel en hann, þá myndu foreldr- ar Jþeirra gefa lienni ráðningu. Önnu leizt eigi á blikuna, þegar lnin heyrði þetta, en sagðiþó: „Hvernig gat jeg annað, en kennt i brjóst um veslings fugl- ana ? Hvaðan eiga þeir að fá fæðu, þegar snjór og ís er yfir öllu. f>ú mátt trúa því, Óli minn! að guð mun einhvern veginn borga okkur þessa ögn af korni“. f>á er börnin komu aptur til mylnunnar, til þess að sækja mjel sitt, þá var meira i polia Önnu en i poka Ólafs; en hvernig á þessu gat staðið, skildu þau ekkert í. En malarinn hafði at tilviljun heyrt, hvað börnin sögðu, þá er þau gengu fram lijá garði hans, og sagði við Önnu: „ Jeg hef látið þig fá meira af mjeli, en þii í rauninni hefur rjett til, en jeg gerði það af því, að mjer þótti vænt um, að þú skyldir kenna í brjóst um smáfuglana. Gjöfin er litil, en taktu þó á móti henni, eins og liún væri send af guði til launa fyrir það, að þú liafðir með- aumkvun með þeim, sem eru nauðstaddir, þégar jafn hart er í ári og nú eru.

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.