Dýravinurinn - 01.01.1885, Qupperneq 54
Hundar safna gjöfum.
nskir hundar tveir, Help og Jack, sem myndir eru aí
hjer í bókinni, hafa veriö haföir til að safna gjöfum handa
hágstöddum, og hafa ]»eir reynzt ágætir til þessa; sjest
bezt af því, sem uú verður sagt, hversu vitrir þeir eru.
1) Help (hjálp) er skotskur fjárliumlur af bezta
kyni. Eigandi hans gaf han-n járnbrautaríj elagi í
Lúndúnum, til þess að hjálpa því til að safna peninga-
;gjöfum, er áttu einkum að vera handa börnum, sem hefðu
misst föður sinn af slisum við járnbrautarferðir. Hundur-
inn hefur reynzt betur, en nokkur hefur gjört sjervonir
um, og safnar hann saman á ári hverju hjer um bil 100
Lst. (1800 kr.) í pyngju, sem hann ber í hálsbandi, og standa þessi orð á henni:
„Jeg heiti Help og er ferðahundur fyrir umkomulaus börn járnbrautarþjóna,
sem farast við járnbrautastörf sín. Ritstofa mín er nr. 306 i City Road, London,
og er þar fegins hendi tekið á móti styrk.
Á seinustu árum hefur Help komið í fiestar hinar stærri borgir á Eng-
landi og í Wales, og tvisvar hefur hann farið yfir sundið milli Frakklands og
Englands yfir til Dieppe. Maður, sem heitir Harford, liefur sjerstaklega umsjón
með hundinum, en liann fer þó með ýmsum liingað og þangað; menn hafa kennt
honum, að fara til svo margra ferðamanna, sem auðið er, þegar hann er á ferðum
sínum, til þess að leita hjálpar hjá 'þeim og fá þá til að leggja fje í pyngjuna.
Og er hundurinn mjög ötull i þessu; liann veit, að þetta er skyldahans, og sýn-
ist hafa gott vit á, hvernig tilganginum verði bezt náð. Ef hundurinn væri
ljettúðugur og kvikull, þá gæti hann eigi staðið í stöðu sinni, en liann er eins
reglusamur og járnbrautarþjónarnir sjálfir. Hann veit, hver tími er hentugastur
til að leita styrks, ýmist þegar vagnlestin stöðvast eða meðan lnin er á hraðri ferð.
Ef fólk vill eigi láta neitt af hendi rakna, snýr hann sjer frá því skyndilega, en
ef einhver lætur eina krónu í pyngjuna, skín út úr honum gleðin. Hann safnar
fjenu með trú og dyggð, og lætur aldrei þá freistingu sigra sig, að kaupa sjer