Dýravinurinn - 01.01.1885, Page 55
49
brauð hjá bakara eða kjöt hjá slátrara, eius og sumir hundar gjöra, hann er á-
nægður með, að fá venjulegan hundamat eptir lokinn starfa á daginn. Liíi
Help í mörg ár til að hjálpa þeim, sem eigi geta hjálpað sjer sjálfir.
2) Jack er makalaust hygginn veiðihundur. Hann hefur verið alinn
upp hjá konu í Suður-Wales; frá því að liann var hvolpur, varhannmjög tryggur
og elskur að börnum. Fyrir nokkrum tíma síðan vildi svo til, að hann steig á
glerbrot og meiddi sig í annari löppinni. Síðan kom bólga í, og varð Jack að
líða miklar kvalir. þó lofaði liann börnum að snerta við sjer; en þá var það, að
Help.
hrekkjóttur strákur þreit íast í löppina, sem konum var illt í. Af sársauka
glepsaði Jack í strák, en beit hann þó eigi. Samt sem áður var hundurinn þó
kajrður, og var kveðið á, að hann skyldi drepinn.
Maður, sem heitir Curtiss, á kundinn nú; hann sá af tilviljun, hvar
Jack var leiddur til sjáfar í bandi til drekkingar; hann kynnti sjer málavöxtu.
og bauð síðan að taka kundinn með sjer á gufubát, er átti að fara um
kveldið til eyjunnar Wight. Menn slepptu hundinum við hann, og fór Curtiss
með hann á skip. Samíerðamenn Curtiss fóru að taka eptir því á leiðinni, að
1