Dýravinurinn - 01.01.1897, Side 4

Dýravinurinn - 01.01.1897, Side 4
2 haustið, tíl þess að losast við að íóðra þá yfir veturinu. Þegar hesti er lógað, þá er vanalega kallað að þeir sjeu »slegnir af«. Þeir heita því afsláttarhest- ar, frá því er þeir hafa veriö ákveðnir til dráps og þangað til dauðadóminuin er fullnægt. Optast eru hestarnir orðnir aldraðir, þegar þeir fá afsláttarhests- nafnið, stundum mjög gamlir og því lengi búnir að þjóna í þarfir mannanna, stundum alla æfina hjá sama húsbónda. Það mætti ætla, að mönnum væri ánægja í að geta látiö fara bærilega um hestana sína slðustu stundirnar, sem þeir eiga að fá að lifa; en hversu harla lítið menn liirða um þetta, sýnir, á- samt ótal fleiru, saga sú, sem hjer fer á eptir. Hún er svona: Maður kom á bæ; það var allgildur bóndi úr næstu sveit. Eins og gerist í sveitum, var bónda boðið að þiggja góðgjörðir og þáði hann það þakksamlega. Bóndinn á bænum bauð að hesti aðkomubóndans væri gefln tugga, meðan hann stæði við. Aðkomumaður haf'ði ekki á móti því að hestinum væri gefið, en sagði, að ekki þyrfti að gefa honum gott; væri nóg að gefa honum moðtuggu, því að þetta væri »afsláttarhestur«. í þetta skipti fjekk hestskepnan samt töðu og má ætla, eptir því sem bóndanum fórust orð, að honum hafi verið það ný- næmi, á hinurn siðustu og verstu tímum sínum, efhann annars nokkurn tíma á æfinni hefir átt nokkru góðu að venjast. Það hefir fráleitt verið í neinu illu skyni fyrir bóndanum, að hann bafði á móti því að hesturinn fengi góða tuggu, en liann heflr viljað að heimsóknin yrði sem útdráttarminnst fyrir hinn bóndann. En þetta var afsláttarhestur, sem hann var með, og það reið bagga- muninn. Ef svo hefði ekki verið, þá var allt öðru máli að gegna; þá hlaut bóndi að hjúkra hestinum því betur á eptir, sem hann var ver haldinn í ferð- inni, ef vel átti að fara. Það er ekki óalgengur, þó að ljótur siður sje, að þræla afsláttarhest- um út sem allra mest, án þess að þeir fái viðunandi fóður, þó að það sje á þeim tíma árs, sem þeir þurfa gjafar ineð, t. d. að haustinu eða framan af vetri. Menn hirða þá ekki svo mjög um það, þó afsláttarhesturinn leggi nokkuð at, ef eitthvað liefst upp úr honum á annan hátt. Opt dregst það lengur fram á veturinn en vera þarf, að afsláttarhestum sje lógað, og eiga þeir þá sjaldnast sældardaga, því að, eins og áður er á vikið, er sjaldan kost- að miklu til þessara hesta, þó að þeir sje hýstir, en gamJir og aflóga hestar þola illa útistöður í misjöfnu veðráttufari. Þegar menn ætla sjer að slá hesta af, ættu þeir því að gjöra það þegar að haustinu, áður en hestarnir erufarn- ir að hrekjast. Móðurást dýranna. Móðurástin er mjög lofuð og flestir telja hana einhverja hina sterk- ustu tilfinningu. Þó er ekkert algengara en að móðurást dýranna sje mis-

x

Dýravinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.