Dýravinurinn - 01.01.1897, Page 28

Dýravinurinn - 01.01.1897, Page 28
24 komast áfram; hann var svo latur og þver fram undir kvöld, að sendisvein- inum bráðógnaði. — En þá, allt í einu, reis hann upp á apturfæturna, saup hregg, svo grenjaði í nösunum og rauk af stað. Það var einn sprettur heim í kaupstaðinn úr þvf. »A morgun . . . þegar jeg losna, þá fer jeg keim . . . . Þá skal jeg heim«. f>að var þetta, sem Skuggi hafði staðráðið þegar hann tók sprettinn. Steingólfið í hesthúsinu var hart, mikið of hart fyrir hann gamlan og þrekaðan; heyið var nóg, en hann vantaði vatnið, sem Steinar var vanur að færa honum, þegar hann var búinn að eta fyrstu hviðuna. Þorstinn píndi hann, svo hætti hann að nasa í heyið, hafði enga lyst á því; labbaði apturog fram um stóra, svalkalda húsið, með hausinn niður við gólf, fór þefandi — einn hring — tvo — þrjá hringina; svo lagðist hann. Daginn eptir, daginn, sem hann Skuggi hafði staðráðið að strjúka heim, þann dag leiddu þeir hann út og drápu hann. Um þann samning vinanna, að Skuggi fengi hvíldina strax og hann kæmi úr ferðinni, vissi hann náttúrlega ekkert. * * * Eptir nýárið frjetti Steinar, hvað Skuggi hafði lifað lengi, og af þess- ari siðustu ferð hans. Hann dreyrroðnaði og setti hljóðan við; var fremur stygglyndur þann dag og svarastuttur. Nóttina eptir svaf hann órótt, og þeg- ar hanu festi svefninn, dreymdi hann, að Skuggi kom heim að húsinu sinu til hans, þefaði af honum og starði á hann; dökku augun svo sorgleg ogdöp- ur. Þá komu þrír menn, tóku Skugga, biltu honum niður og skáru hann; en Steinar gat ekki hreyft sig. Ekkert gert annað enn horfa á. Eða Skugga brá fyrir ungum og leikandi; stökk suður að hamragilinu og þar beint fram af hengifluginu, niður í urðina. Steinar vildi hlaupa og handsarna hann á sprettinum, en komst ekki þvers fótar. Hann bara sá Skugga, en var algert varnað að sýna honum neitt vingjarnlegt atlæti; ekkert hjálpað honum, hversu fús sern hann var þess, hvað sárt sem hann þráði það. Nokkru fyrir dag, löngu fyr en aðrir risu úr rekkju, var Steinar kominn út til fjárins og hestanna sinna. Starfiö var honum geðfeldara. Þorgils gjallandi.

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.