Dýravinurinn - 01.01.1897, Qupperneq 45

Dýravinurinn - 01.01.1897, Qupperneq 45
35 svo að mennirnir sögðu: »Nú eru blessaðir vorfuglarnir komnir með boðskap- inn um sumarið«. Svo kom vorbliðan og- gróðurinn í vikunni fyrir hvitasunnu. Þá glödd- ust menn og skepnur. Mennirnir fóru að ferðast og lialda fundi. Fuglarnir kvökuðu ánægjulegar en áður og byrjuðu smátt og smátt að búa til hreiðrin. sin, en svo kom þeim saman um, að þeir skyldu halda fjölskipaðan fund áður. Margar þúsundir fugla af ýmsu kyni sóttu fundinn, lóur, spóar, stelk- ar, sandlóur, hrossagaukar og máríerlur o. m. fl. Þá stje fyrst fram gamall spói og segir: »Jeg hefl leyft mjer að boða ykkur á þenna fund, til þess að bera fram þá tillögu fyrir ykkur, að við skulum eigi vera svo skammsýnir að byggja hreiður okkar í mannabyggðum þetta sumar, en fara heldur upp á heiðar og háfjöll og klekja út eggjum og ala upp unga okkar þar, því að tvö undanfarin sumur hafa mennirnir rænt eggjum minum, svo að jeg varð að fara slyppur og snauður heira til mín aptur bæði haustin«. »Ekki vil jeg það«, sagði lóan, »jeg vil vera í byggð og syngja fyrir mönnunum: »dýrðin,« »dýrðin«. »Jeg er samþykkur frænda mínum* sagði annar spói, »jeg vil vinna það til að vera í mýrarflóum uppi á heiðum í illviðrum i sumar, þó að mjer þyki það leiðinlegt, til þess að missa ekki eggin min, eins og i fyrra«. »Bí við, bí við«, sagði sandlóan; »ekki vil jeg vera með í þessu, að flýja upp i óbyggðir; mjer þykir miklu skemmtilegra að vera niðri í sveitinni og hoppa á eyrunum fram með lækjunum og ánum; eggin mín eru svo lítil, og mennirnir hafa verið góðir við mig og sjaldan g'jört mjer illt, þó að jeg hafi verið hrædd við þá«. »Sama segi jeg«, sagði máríerlan, »mennir hafa verið meinhægir við mig og hafa gaman af því, hve kátar við frændsystur erum, einkum fyrst á vorin, þegar við erum nýkomnar; við munum því hvorki flýja byggð nje búa«. »Mikill heimskingi er máríerlan« sagði steikurinn; »hún heldur að mennirnir sjeu góðir og hlífi henni þess vegna. Nei! þeir láta hana i friði eingöngu af því, að hún er svo lítill vesalings-aumingi, að enginn er sá, er telur sjer nokkurn hagnað í því að ræna hana eggjum hennar eða lífi; hún ætti þá að vera eins stór og jeg er, eða þó heldur eins og svanurinn, sem er langtum fallegri fugl og skemmtilegri; þá væri gaman að heyra dóm henn- ar um mannúð mannanna«. »Þó að jeg sje samþykkur því í aðalefninu, sem frændur mínir hafa áður sagt«, sagði þriðji spóinn, »að mikil hætta sje fyrir okkur að klekja út eggjum okkar og ala upp börn okkar í mannabvggðum, þá held jeg gagns- lítið fyrir okkur að flýja upp á heiðar. í hitt eð fyrra var jeg i byggð og var ræntur öllum eggjunum; jeg fór því í fyrra sumar upp á miðja Grímstungna- 5*

x

Dýravinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.