Dýravinurinn - 01.01.1897, Page 51

Dýravinurinn - 01.01.1897, Page 51
41 garðinum beina leið að hesthúsinu. En hesthúsið var lokað. Jarpur ljet höf- uðið siga, lagði aptur augun og fór að hugsa um stinginn, sem allt af varð sárari og sárari i brjóstinu. Þegar fólkið á Mýri var að klæða sig um morguninn, kom einn vinnu- maðurinn, sem vanur var að fara fyrstur ofan, hlaupandi upp stigann og upp á baðstofuloptið. Hann kallaði snöggt til hins vinnumannsins og bað hann koma sem allra bráðast að hjálpa sjer, því gamli Prests-Jarpur lægi við hest- búsdyrnar og hreyfði sig ekki. Einhver spurði, hvort hann myndi vera dauð- ur, og sagði þá vinnumaðurinn, að sjer hefði virzt hann draga andann, en aug- un hefðu verið eins og dauð. Maðurinn, sem á var kallað, var þá nærri al- klæddur og hljóp strax ofan á eftir hinum. Prestur heyrði óglöggt í svefnrofunum, hvað vinnumaðurinn hafði sagt, en þegar hann heyrði að einhver spurði hvort Prests-Jarpur væri dauður, þá varð hann strax glaðvakandi. Tók þegar föt sín og var alklæddur á svip- stundu. Hann gekk óvanalega hart fram eftir loptinu, ofan og út úr bænum. Bylnum var stytt upp, en stinnur kaldi og grimmdarfrost. Sjera Jón gekk strax til hestshússins. Þar voru þá báðir vinnumenniruir, Þeir voru búnir að sprengja hurðina af hjörunum og voru nú að ryðja fönninni frá Jarp og bisa við að koma böndum undir brjóstið og herðarnar, til að geta dregið hann inn úr dyrunum. Prestur sagði sjálfur fyrir, hversu að öllu skyldi fara; hann fór sjálfur inn i hesthúsið og lyfti upp höfði Jarps, en það var alveg mátt- vana. Hann lagði eyrað við andardrættinum og fannst sem hann heyrði hann, en tiðan og mjög veikan og eins og hrygla fylgdi. Svo tók hann i faxið og annað bandið og togaði með öðrum manninum, en hinn ýtti á eftir og með þessu móti gátu þeir komið Jarpi inn i húsið og hagræddu honum á heybing i auða endanum á húsinu. Þegar þessu var lokið, var komið fieira fólk að( og þar á meðal læknirinn, og búið að kveikja ljós. Læknirinn leit á hestinn, hleraði snöggvast við andardráttinn og sagði strax, að það væri áköf lungna- bólga og engin von um lif. Prestur vildi þó að eitthvað væri reynt, og var hellt ofan í hestinn heitri mjólk með ofurlitlu af konjaki i, og virtist þeim sem hann reyndi til að kyngja þvi niður. Prestur sótti sjálfur dálitinn bita af hvanngrænni töðu, og ljet i munn Jarpi. Samskonar töðubita hafði prest- ur oft látið sækja Jarpi, þegar hann kom með hann þreyttan að, og brást al- drei, að Jarpur tæki hneggjandi við honum og æti með góðri lyst. Nú var líka eins og hann lyki upp augunum og hjálpaði til að opna munninn, en svo lá tuggan óhreyfð milli tannanna; mátturinn var þrotinn til að tyggja. Þeir stumruðu nú þarna yfir klárnum nokkra stund i hesthúsinu, en eftir svo sem tæpa tvo klukkutima komu allir út. Þá var Jarpur dauður. Seinna um morguninn sendi prestur mann til Einars í Selinu til að birkja Jarp og taka af honum skinnið, og gerði hann það með vinnumönn- 6

x

Dýravinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýravinurinn
https://timarit.is/publication/430

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.