Heimilisblaðið - 01.12.1962, Síða 26
< Þessir tveir marabustorkar
eru hnípnir og alvarlegir, þar
sem þeir standa í dýragarðin-
um í London og krókna i
kuldanum.
Það eru ekki allir sem geta
staðið á eigin fótum rétt eft-
ir fæðinguna eins og þetta
litla mufflon-lamb. Mufflon-
féð er eina fjárkynið, sem
lifir villt í Evrópu. >
< Þetta er rithöfundurinn
Vladimir Nobokov, sem varð
frægur fyrir hina umdeildu
skáldsögu sína „Lolitu", sem
hefur verið kvikmynduð.
Kvikmyndin hefur verið
frumsýnd i New York. 15
ára stúlka, Sue Lyon, lék
Lolitu. Hún fékk ekki að vera
við frumsýninguna á mynd-
inni, því að hún var bönnuð
börnum innan 18 ára aldurs.
Útkoma bókarinnar hefur ver-
ið bönnuð í mörgum löndum.
Stærsta stífla í heimi,
Boulder-stíflan í Colorado-
fljótinu í Nevada í Banda-
ríkjunum, er eftirsóttur stað-
ur af ferðamönnum. Talið er
að meira en 1 milljón ferða-
menn hafi komiö að stíflunni
síðan Roosevelt forseti vígði
hana árið 1936. Hér á mynd-
inni er listakona að mála hið
tilkomumikla útsýni. >
< Hið fræga heimili fyrir
aldraða hermenn í Chelsea
hefur minnzt stofnanda síns
með skrúðgöngu, og Elísabet
drottning heimsótti stofnun-
ina og sagði nokkur vin-
gjarnleg orð við sérhvern
öldung, sem sátu fyrir utan
bygginguna með heiðursmerki
sín á brjósti sér.
Sífellt koma á markað nýir
hlutir, sem auðvelda fólki úti-
legur, t. d. þessi gaslukt, sem
var á sýningu í Frakklandi,
þar sem viðlöguútbúnaður var
sýndur. Hún er hlaðin með
gashylki, sem endist í tutt-
ugu klukkustundir. >
246
HEIMILISBLAÚ10