Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 3

Heimilisblaðið - 01.01.1964, Síða 3
 SVELTIMEISTARAR — sem leggja á sig langar föstur hvað eftir annað, geta lifað á sódavatni og sígarettum einum saman í 30—JjO daga, án þess að verða meint af því, svo séð verði. Það virðist hljóma sem þversögn, að til skuli vera fólk, sem vinnur fyrir brauði sínu — með því að svelta. Engu að síður er þetta dagsatt, og stöku sinnum berst manni til eyrna, að nú hafi einn svelti- meistarinn enn sett heimsmet. Fyrsti sveltimeistarinn, sem vakti al- heimsathygli, var þýzki Bandaríkjamaður- inn dr. Tanner, sem fyrir u. þ. b. 70 árum fastaði í fjörutíu daga í hótelherbergi einu í Chicago undir eftirliti. Sem dæmi um það, hvílík áhrif fasta hans hafði um alla heimsbyggðina, má nefna það, að enn í dag nota Þjóðverjar orðið tannern um það að svelta. Þegar orðrómurinn um hetjudáð Tann- ers barst til Evrópu, hóf Itali nokkur, Francesco Succi að nfani, áróður fyrir því, að hann hefði sjálfur fastað í fjórtán daga, og að hann væri reiðubúinn að fasta í þrjátíu daga undir eftirliti. Ef sér tæk- ist það, skyldi hann reyna síðar að fasta í fjörutíu daga, rétt eins og dr. Tanner. Atburðurinn átti sér stað í Mílanó, og 56 manna nefnd — mestmegnis læknar — höfðu eftirlit með honum nótt og dag. Hann fékk leyfi til að drekka venjulegt vatn og sódavatn, en auk þess hafði hann áskilið sér rétt til að drekka sextíu grömm af vökva einum er hann kvaðst hafa feng- ið í Suður-Ameríku, bæði fyrsta dag föst- unnar og einu sinni síðar á meðan á henni stóð. Rétt áður en föstutíminn hófst gæddi hann sér á ríkulegum málsverði, drakk sextíu grömm af áðurminnztum vökva og gekkst síðan undir eftirlit nefndarinnar. Þá vóg hann sextíu kíló. Fastan átti sér stað í hótelherbergi, og þangað fékk almenningur aðgang allan sól- arhringinn gegn einnar líru gjaldi. Daglega gerði Succi leikfimisæfingar, og á níunda degi föstunnar fór hann í klukku- stundar langan útreiðartúr ásamt eftirlits- nefndinni. I læknaskýrslunni þennan dag stóð: „Hefur misst 5% kg. — Kinnfiska- soginn. — Vöðvastyrkur hinn sami. — Hefur gert sex knébeygjur með hægra kné einu saman.“ Með auknum áhuga almennings og sam- svarandi mergð heimsókna hélt Succi áfram föstu sinni án frekari óþæginda í þrjátíu daga. Þá hafði hann létzt um fjórtán kíló. — Eftir þessa velheppnuðu tilraun ferðaðist hann víðsvegar um Evrópu árum saman og fastaði í 30—40>

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.