Heimilisblaðið - 01.01.1964, Side 15
21. Síðan ók vagninn burtu, en börn Tómasar, sem
nú fyrst skildu alvöru þess sem var að gerast, brustu
í grát. — Eftir hálftíma ferð, lét Haley nema staðar
fyrir utan smiðju eina, til að aðgæta, hvort allt væri í
lagi með handjárnin. Smiðurinn kom út og varð undr-
andi að sjá þar Tómas frænda; fullvissaði Haley um
það, að hann væri mikið stillingarljós og engar áhyggj-
ur þyrfti að hafa af honum. En Haley, sem þegar var
búinn að missa negradrenginn út úr hönduniun, vildi
ekki eiga neitt á hættu.
23. í gamalli krá í Kentucky söfnuðust gestimir sam-
an um auglýsingu, sem sett hafði verið á vegg. Þar var
auglýst eftir negra einum Georg að nafni, og heitið
var háum fundarlaunum handa þeim, sem gætu haft
uppi á honum. Gamall bóndi skirpti á auglýsinguna
og fór hörðum orðum um þrældóminn á negrunum og
þá menn, sem kæmu svo llla fram við vinnufólk sitt,
að það yrði að flýja.
22. En hann á konu og börn, hélt smiðurinn áfram.
Ég skal áreiðanlega útvega honum aðra konu, þegar
við komum á ákvörðunarstaðinn, anzaði Haley. í sama
mund kom ungur sonur Shelbýs ríðandi þar að á hesti.
Hann vissi ekkert um söluna á Tómasi og varð hinn
æfasti er hann sá, að Haley hafði haft á brott með sér
góðan vin hans frá barnæsku. — En þú getur verið
viss um það, Tómas frændi, sagði hann, að einn góðan
veðurdag kem ég og sæki þig aftur.
24. Roskinn verksmiðjueigandi studdi mál hans, en
rak í vörðurnar, þegar ókunnur gestur gekk inn í veit-
ingastofuna. Tvimenningamir gengu síðar til herberg-
is hins nýja gests og komust að raun um, að gestur
þessi var enginn annar en hinn eftirlýsti þræll Georg,
eiginmaður Elísu, en hann hafði nú breytt svo útliti
sínu, að hann var óþekkjanlegur. Verksmiðjueigand-
inn, sem áður hafði haft hann í þjónustu sinni og mat
hann mikils, lét honum nú í té f járupphæð og hét hon-
um því að hafa uppi á konu hans og syni.
HEIMILISBLAÐIÐ
15