Heimilisblaðið - 01.01.1964, Qupperneq 23
Þessi unga Lundúnastúlka er
ein efnilegasta iþróttakona
Englands. Hún er sextán ára
og heitir Kathryn Doycett.
Hún hefur þegar oft orðiö
meistari og sérgrein hennar er
kúiuvarp og kringlukast. í
kúluvarpi sló hún metið sem
heimsmeistari kvenna, Tamara
Press, Rússlandi, setti, þegar
hún var seytján ára. Hér á
myndinni sést Kathryn í æf-
ingabúningi sínum, sem þak-
inn er meistaraverðlaunapen-
ingum.
Hér á myndinni er hinn sjö
ára gamli sjimpansi Enoch.
Hann sýnir listir sínar á
skautasýningu í skautahöll
Wembleys í London. Það er
skautameistari brezkra kvenna
sem sýnir með Enoch.
Þessi lítla kinverska stúlka,
sem neytir máltíðar sinnar sæl
og ánægð, átti fyrir skömmu
ekkert heimili. Hún fannst ný-
fædd borin út á götu í Hong-
kong. Nú hefur Yip Sai Mei
litla eignazt uppeldisheimili í
Englandi, þar sem vingjarn-
legt fólk mun annast framtíð
hennar.
Caroll Baker, kunn úr kvik-
myndinni „Baby Doll“, leikur
aðalkvenhlutverkið í kvikmynd
sem verið er að taka eftir
metsölubók Harold Robbins,
„Hinn óseðjandi", sem lýsir lífi
kaupsýslumanns í Ameriku.
Þessi mynd af Caroll Baker er
úr kvikmyndinni.
Hinn nýi forsætisráðherra
Bretlands Alec Douglas-Home
er áhugasamur veiðimaður og
stundar þessa íþrótta sína
þrátt fyrir sitt erfiða og mikla
starf. Hér er hann að skoða
fasana, sem hann hefur lagt
að velli.
Það er ekki að furða þótt litla
stúlkan virði stolt fyrir sér ný-
fædd systkini sín, því þau eru
hinir þekktu þríburar Melaine,
Gary og Beverley, sem fædd-
ust fyrir skömmu í Leeds í
Englandi. Þeir eru stærstu þrí-
burar, sem fæðzt hafa þar í
landi.
HEIMILISBLAÐIÐ
23