Heimilisblaðið - 01.01.1964, Page 36
ViS, sem vinnum
eldhússtörfin
Hér eru uppskriftir af nokkrum mjög
góðum kökum og kemur sér vel að geta
breytt svolítið til í saumaklúbbum eða
fjölskylduboðum.
Appelsínukaka
1 hg sætar möndlur
IV2 dl brætt smjör
iy2 dl rasp
6 msk rjómi
4 egg
2% dl sykur
skraut
2 dl rjómi
2-3 bananar
riíið súkkula'ði.
Hrærið eggjarauðu og sykri saman og
bætið síðan rjómanum út í. Bræðið smjör
og kælið, látið það síðan út í deigið ásamt
raspinu og möluðum möndlunum. Þeytið
eggjahvítuna mjög vel og látið varlega út
í. Hellið deiginu í vel smurt mót með laus-
um botni (ca. 23 cm í þvermál). Bakið við
hægan hita (160°) í klukkustund. Þegar
kakan er orðin köld er hún skreytt með
þeyttum rjóma, bananasneiðum og rifnu
súkkulaði.
Sænsk möndlukaka
250 gr smjör
250 gr sykur
4 egg
250 gr hveiti
1 tsk ger
150 gr hakkaðar möndl
ur
Mýkið smjörið og hrærið með sykri og
eggjum. Bætið hveiti, geri og möndlum út
í og rifnu hýði af tveimur appelsínum og
safa úr einni. Látið deigið í hringlaga form
og bakið í 1 klst. við 170° hita.
Berið krem á kalda kökuna og skreytið
ef til vill með appelsínubitum.
2 appelsínur.
Krem:
1 eggjahvíta
ca. 125 gr. flórsykur
2 tsk appelsínusafi.
Luxuskaka
250 gr smjörliki
200 gr sykur
1 bréf vanillusykur
4 egg
ofurlítið salt
125 gr hveiti
125 gr maís
1 tsk sléttfull ger
100 gr hakkað súkkulaði.
Smjörlíkið er hitað og sykur og vanillu-
sykur hrærist saman við. Egg og salt er
látið út í smám saman. Hveitið sem er
síað og blandað með maís og geri er látið
smám saman út í. Síðast er grófthakkað
súkkulaðið látið út í. Deigið er látið í
hringlaga form og bakað í klst.
Smárá&legéiné&r í eldhúsintx
Leggið ferkantaðar fransbrauðssneið-
ar (sem búið er að taka skorpuna af), sam-
an og hafið þykka ostsneið á milli, skerið
brauðsneiðarnar í þríhyrninga og veltið
þeim í samanþeyttu eggi og rifnum osti.
Steikið sneiðarnar ljósbrúnar á pönnu og
framreiðið þær heitar með teinu.
36
HEIMILISBLAÐIÐ