Iðunn - 01.01.1885, Side 9
Gull.
3
fyrstu kapítulum heilagrar ritningar: »0g á rann
um Eden, til að vökva aldingarðinn, og þaðan skipt-
ist hún, svo þar urðu fjögur vatnsföll. jpað fyrsta
heitir Pison, og fellur um gjörvalt landið Havila, og
þar er gull«. Á frásögum Mósesar má sjá, að aust-
urlandaþjóðir hafa á elztu tímum eigi einungis haft
gullið til skrauts, heldur safnað því í fjárhirzlur. Að
menn hafi í þá daga eigi látið sjer nægja það gull,
sem lá ofanjarðar og ná mátti þar fyrirhafnarlaust,
heldur grófu líka eptir því i jörðu niður og bræddu
það úr öðrum málmblendingum, það sjest á Jobsbók,
þar sem Job segir, að silfrið hafi síu göng og gullið
sína staði, þar sem það er brætt.
Hið fyrsta reglulegt málmnám eptir gulli virðist
hafa verið á Egiptalandi, á strandlendinu með fram
Eauðahafi. Hvernig þetta málmnám var stundað
og með hvaða föngum gullsins var aflað, má sjá.á
frásögn Díódórs af Sikiley, er var uppi á dögum
Cæsars og Ágústus keisara. Hann segir svo: »Lönd-
in í Egiptó nær Eþíópíu og Arabalöndum er auðug
af gulinámum, er mikinn mannafla þarf til að vinna
og mikið fjármagn. þar er svartur málmur með
hvítum æðum og mörgum glóandi smádeplum.
Endist ekki þrælar auðmanna og herteknir menn,
þá eru teknir dæmdir sakamenn og ættingjar þeirra
og vandamenn til vinnunnar í námunum. þetta
vesalingsfólk verður að vinna nótt og dag hvíldar-
laust. Yfir það eru settir launaðir umsjónarnienn,
er mæla á aðra tungu en verkafólkið, til þess að þeir
skuli ekki láta til leiðast fyrir bænastað þess og fög-
ur loforð að veitaþeim nokkra vægð eða hlífð. þessir
1*