Iðunn - 01.01.1885, Page 12
6
Gull.
í gulli. Megnið af þessu gulli hljóta þeir að hafa
dregið samau á Egiptalandi.
Síðari frásagnir um geysilegt auðsafn þessa hins
útvalda lýðs eru enn þá mikilfenglegri. Davíð kon-
ungur segir, þegar hann var að ráðgjöra að byggja
musterið: »Sjá! í öllu mínu basli hefi jeg dregið
að gull til Drottins húss, hundrað þúsund (10-fjórð-
unga-) vættir, og silfur, þúsund sinnum þúsund vætt-
ir«. Slík feikna-fúlga af dýrum málmum eru þau ósköp
í peningum, að bágt er að hugsa sjer annað ón að þetta
eigi ekki að skilja eptir orðanna hljóðan. Hins veg-
ar nær það nokkurri átt, sem sagt er um Salómon
konung, að hann hafi lagt til frá sjálfum sjer til
musterisgerðarinnar 3000 vættir gulls og 7000 vætt-
ir silfurs, en stórmenni landsins 5000 vættir gulls og
10,000 vættir silfurs. Um tekjur konungs segir svo,
að »það gull, sem Salómon fjekk árlega, var að vigt
666 vættir, auk þess sem kom frá krömurum og kaup-
mannahöndluti, og frá ölium kóngum Arabíu, og
ljensmönnum í landinu«. »Og öll drykkjarker Saló-
mons konungs voru af gulli, og öll húsgögn í Líbanons
skógarhúsi voru af klára gulli; ekkert silfur; það var
einskis metið á dögum Salómons«.
Landið Ofír var þeirra tíma Kalífornía, og hefir
enginn getað komizt fyrir til þessa, hvar það hefir
verið. Sumir lialda það muni hata verið austur-
strönd Afríku, er kallað var þessu nafni; aðrir eru
þeirrarskoðunar, aðþað hið fyrirheitna land hafi verið
Yestur-Indland. Sennilegast er, að Hebrear hafi með
nafninu Ófír átt við allt sem var fyrir sunnan Rauða-
haf.
Ekki var alstaðar eins mikið um gullið og á Gyð-