Iðunn - 01.01.1885, Síða 18
12
Gnll.
þess að finna nýjar gullnámur. Svo átti vel til að
takast, að sú von rættist. Columbus var ekki
lengra kominn en til eyjarinnar Ha'iti, er þeir
fundu gullsand í vatnsföllum þar, og var þegar tekið
til verka aö vinna gullið. Sfðarmeir, þegar Spán-
verjar voru búnir að vinna undir sig Perú, þá fannst
þar gull í jörðu miklu meira en á Haiti, og þar
faunst jafnframt ógrynni silfurs. jpegar Mexico var
unnin, fannst þar 6 milj. kr. virði í gulli, og því
lengra sem dró suður á bóginn, því auðugri varð
jörðin af gulli. I Mið-Ameríku, Perú, Nýju-Granada,
Bólivíu.Chili,—í öllum þessum löndum fannst gull,og
jafnvel víðar. Svo kom Brasilía til sögunnar.
Efvergi voru önnur eins ógrynni fyrir af gulli f jörðu
eins og þar. það fannst þar fyrst árið 1590, í
hjeraðinu San-Paulo, við Serra de Jaragin, og ílaug
sú feginsaga um land allt eins og elding. Fólk
varð allt sem í uppnámi, er því kom sú vitueskja, að
nú væri loks sá dagur upprunninn, að afla
mætti hinna langþreyðu auðsnægta án nokkurra
erfiöismuna. þar kom bráttt, að skipakost þraut
í Portúgal að flytja þá, er komast vildu vestur um
haf að ná í hina miklu blessun. Alveg sömu lætin
þá, 1590, eins og 1848. Mannkindin er jafnan sjálfri
sjer lík. Rúmum hundrað árum síðar, 1693, fannst
gull á öðrum stað í Brasilíu, og það enn meiraen í San
Paulo; það var í lrjeraðiuu Minas Geraes. A tímabil-
inufrá upphafi 18.aldar till760unnuþar80,000manna
að gullgrepti og gullhreinsun. Yfir höfuð var Suður-
Ameríka hið mesta gullland í heimi upp frá þoim
tfma og langt fram á þessa öld. það hafói reynzt
hið mesta fangaráð að leita vestur á bóginu til að