Iðunn - 01.01.1885, Síða 40

Iðunn - 01.01.1885, Síða 40
34 Gull. þessi lögur eimdur, þá fer ekki eins og að framan er sagt um blöndu úr gulli og kvikasilfri, að gullið verði eptir á botninum, heldur kemur í þess stað gul- leitt duft, deigt, alls annars eðlis en reglulegt gull. Gullið er eitt af frumefnunum, en í þess stað er nú hjer komin efnablauda af tveimur frumefnum, sem sje klór og gulli, og er kölluð klórgull. það er skrítið, hvernig fer, ef gullmoli og annar moli af hvítagulli (platínu) eru látnir í »kóngavatn« undir eins. þá rennur gullið í sundur, en hvftagullinu sjer ekkert á. En í því bili sem síðasta gullkornið hverfur, tekur fyrsta hvítagullskornið að renna sund- ur, og loks hverfur allur hvítagullsmolinn, alveg eins og gullmolinn áður. það er kunnugra en frá þurfi að segja, að enginn hlutur er fullkominn í heimi hjer; og svo er um gull- ið, þótt æði-margt og mikið hafi það til síns ágætis. þrátt fyrir sína miklu kosti hefir það einn annmarka, sem mikið mein er að. Hann er sá, að það er svo lint eða deigt, að slíks eru eigi dæmi um nokkurn málm annan. Til að bæta úr þessu, og varna því, að smíðisgripir úr gulli eða peningar slitni um of, þá eru bræddir saman við það aðrir málmar, þeir er það getur samlagast svo, að haldi rjettu eðli, annarhvor eða báðir, — silfur eða eir. |>á verður það miklu harðara og slitnar því síður, en breytir jafnframt nokk- uð lit. Eiri blandið verður það rauðleitt, en hvítleitt af silfrinu; en bil beggja, ef hvorttveggja er haft í því, eir og silfur. 1 þessum samsteypum er gullið talið í karötum og grönum; eru 24 karöt í 1 mörk gulls, og 12 grön í hverju karati. 1 vandað gullsmíði ér eigi haft nema 18 karata gull, þ. e. eða f af skíru

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.