Iðunn - 01.01.1885, Page 43

Iðunn - 01.01.1885, Page 43
37 'Edgar Foe: Brjefstuldurinn. sig vera sokkinn ofan í að virða fyrir sjer reykjarhring- ■ iðurnar, sem þyrluðust út í loptið í herberginu. Jeg fyrir mitt leyti var þó að hugsa með sjálfum mjer um atriði, sem höfðu verið umræðuefni okkar fyr um kvöldið; jeg á við morðið í Líkhúsgötunni, og eins um þá ráðgátu-þoku, sem hvíldi yfir æfilokum Maríu Eoget. Mjer fannst það því meira en tóm til- viljun, þogar barið var að dyrum hjá okkur og inn kom gamall kunningi okkar, lierra G.—,yfirmaður lögregluliðsins í París. Við fögnuðum honum glaðlega, því maðurinn var skemmtilegur, þó hann væri meira en hálffyrirlitlegur í aðra röndina ; enda höfðum við þá ekki sjeð hann í nokkur ár. Við höfðum setið í myrkrinu, en Dup- in stóð nú upp til að kveikja á lampanum ; en þó varð ekki af því, því að Dupin settist niður aptur þegar G. sagðist vera kominn að ráðfæra sig við okkr eða rjettara sagt leita álits vinar míns um erindi nokkuð, er embætti hans varðaði og hafði orðið hon- um all-torvelt. »Ef það er eitthvað, sem íhugunar þarf«, svaraði Dupin, og hætti við að kveikja, »þá gengur það bet- ur í myrkrinu». »þarna eruð þjer aptur kominn með eina yðar und- arlegu sjervizku#, sagði lögreglustjórinn, en það var Vandi hans að kalla allt »undarlegt«, sem gekk yfir skilning hans, og var því í lians augum lífið fullt af »undarlegheitum«. »Satt er nvi það«, sagði Dupin, og rjetti tóbaks- pípu að gesti sínum og ýtti til hans hægindastól. »Hvaða vandi er yður á höndum?« spurði jeg; »jeg Vona að það sje þó ekki nöitt nýtt manndráp á ferðum«.

x

Iðunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.