Iðunn - 01.01.1885, Side 59

Iðunn - 01.01.1885, Side 59
Brjefstuldurinn. 53 ráðkænsku til að bera heldur en þeir, og mjög opt, þótt hún sje minni. þeir hafa enga tilbreytni í reglunum fyrir eptirgrennslunum sínum ; þegar bezt lætur, þegar t. d. eitthvað rekur á eptir venju fremur, svo sem að óvénju-mikil verðlaun eru í boði, þá herða þeir á gömlu aðferðinni eða fara þar fram jafnvel úr öllu viti, en snerta ekki við reglunum, sem þeir eru vanir að fara eptir. Hvað hafa þeir nú t. d. breytt út af að því leyti til í brjefstuldarmálinu því arna ? f>eir boruðu og stikuðu, könnuðu með sjónauka, hlutuðu allt húsið niður í skrásetta ferhyrnings- þumlunga o. s. frv.; en hvað var þetta allt saman annað en ógegndarleg hagnýting þeirrar einu reglu fyrir þjófaleit, sem er byggð á þeim hinum einu athugunum viðvíkjandi mannlegri ráðkænsku, er lög- reglustjórinn hefi sjálfur vanizt um sína embættis- tíð ? Sjerðu ekki, að liann hefir gert ráð fyrir því eins og sjálfsögðum hlut, að allir menn hefðu sama ráðið til að fela sendibrjef, ekki kannske raunar að bora holu í rúmstuðul og hvergi annarstaðar, en þó að minnsta kosti að hafa til þess einhverja holu eða horn á afviknum stað, er þjófnum hugkvæmist eptir sama hugsunarferli og þeim, er leiðir mann á að fela sendibrjef í nafar-rauf í rúmstuðli ? Og sjerðu ekki líka, að þess konar uppleitaðar og til- búnar smugur til að fela í hluti eiga ekki við nema við algeng tækifæri, og mundu ekki notaðar af öðrum en svona meðalgreindum mönnum eða varla það; því að hjer um bil í hvert skipti sem þýfi er falið, má undir eins gera ráð fyrir og er líka undir eins gert ráð fyrir, að því muni hafa verið komið fyrir einhverjum stað, sem er svona sjerstaklega til

x

Iðunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.