Iðunn - 01.01.1885, Page 62

Iðunn - 01.01.1885, Page 62
66 Edgar Poe : Tölvísi er fróðleikur um lögun hluta og fyrirferð. |>að sem er sannleikur í þeirri vísindagrein, er margopt tóm vitleysa í öðrum fræðum. I andlegum fræðum t. a. m. er það þrásækilega o'-satt, að allir partarnir saman- lagðir sjeu jafnir heildinni. I efnafræði slíkt hið sama. það eru mörg önnur tölfræðisleg sannindi, sem eru ekki sannindi nema innan þeirra takmarka, er tölvísin nær til. En tölfræðingar álykta, af vana, eptirþessum tahnörkuðu sannindum, rjett einsogþau væru takmarkalaus eða algild, ættu alstaðar við,— og það ímynda aðrir sjer líka. Jeg hefi í stuttu máli aldrei hitt fyrir neinn þann tölfræðing hingað til, hafi hann bara verið tölfræðingur og ekki annað, að hann hafi ekki með sjálfum sjér trúað á það eins og hcilagan sannleika, að x2 + px væri hvar sem stæði og skilmálalaust = q. Beyndu einhvern tíma að gamni þínu að koma upp með það við einhvern slíkan garp, að þú haldir að það geti þó staðið svo á, að x2 + px sje ekki alveg sama sem q, og gerðu honum svo skiljanlegt, hvað þú átt við; jeg segi þjer satt, að það er varlegra fyrir þig að hafa þig á kreik sem skjótast, því hann mun eiga bágt meö að stilla sig um að berja þig«. Jeg gerði ekki nema hló að þessum síðustu at- hugasemdum. Dupin hjelt áfram og mælti: »J?að sem jeg vildi sagt hafa, er það, að hefði sendiherrann ekki verið neitt annað en góður reikningsmaður eða tölfræðing- ur, þá hefði lögreglustjórinn aldrei þurft að fá mjer skuldmiðann þann arna. En jeg þokkti hann og vissi, að hann var bæði tölfræðingur og skáld, og eptir því hagaði jeg ráðum mínum, og hafði jafn-

x

Iðunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.