Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1921, Page 51
IÐUNN]
Staðarfell á Fellsströnd.
289
Að Staðarfellið er orðið að slíku höfuðbóli er mest
að þakka eigendum þess, þeim heiðurshjónunum
Magnúsi Friðrikssyni og konu hans Sotl'iu Gests-
dóttur, er setið hafa jörðina nú í 18 ár undanfarið
og umbætt hana á alla lund.
1*300 2. október síðaslliðinn urðu þau hjónin fyrir
þeirri sáru sorg að missa son sinn Gest, hinn efni-
legasta mann, og fósturson, Magnús Guðfinnsson, í
sjóinn, ásamt tveim hjúum sínum. Er það nú vilji
þeirra hjóna, svo og tveggja dælra þeirra, sem á lífi
eru, að gefa landinu Staðarfell undir hinn fyrirhug-
aða kvennaskóla á Vesturlandi, sem frú Herdís Bene-
dietsen hafði gefið eigur sinar til í minningu dóttur
sinnar, Ingileifar. Gefa þau hjónin, Magnús og Soffía,
Staðarfellið undir skólann með því skilyrði, að skól-
inn verði jafnframt húsmæðraskóli með fyrirmyndar-
búi, og á gjöf þessi að hera nafn þeirra kjörbræðr-
anna, Gests og Magnúsar.
Með þessu hafa þau Staðarfellshjónin gefið öðrum
fagurt fordæmi og eftirbreylnisvert; og víst er um
það, að skólinn verður þarna vel settur, svo að segja
í hjarta Vesturlands. Og víst er sú hugmynd góð að
hafa þarna fyrirmyndar-skóla og skólabú fyrir verð-
andi sveitakonur.
19