Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 32

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 32
Um tregöu. IÐUNNT 142 manna. En með því er málið vitaskuld ekki frekar leysE Enn heldur spurningin áfram og er jafn-áleitin — hverju það sæti, að leiðin fyrir mannkynið til hamingju og far- sældar skuli vera svona feikilega örðug. Og undir niðri er sem menn trúi þó, að þetta geti ekki verið svo erfitt. Þeir sjá hvílíkum takmarkalausum krafti alheimurinn býr yfir. Hann hefir ekki eingöngu hinn ytri líkamlega kraft, sem býr í orku efnisins, geislum sólar, hraða vindarins, hreyfingu hafsins o. s. frv., heldur hefir hann kraft til þess að framleiða vit og snild, listir og vísindi, göfgi og heilagleik. Þess vegna hugsa í raun og veru svo margir á líkum brautum eins og bent var á í orðunum, sem ég hafði eftir bókarhöfundinum hér að framan: »Ef ég eða þú ættum að stjórna heiminum, þá mundum við vafalaust gera það á töluvert aðra lund en nú er gert. Við mundum sjá um, að hlutunum væri þann veg fyrir komið, að um beina, stöðuga framför upp á við væri að ræða, í áttina þangað, sem menn með réttu þráðu að komast*. I þessu liggur, eins og allir geta séð, sú hugsun falin, að í raun og veru valdi tilveran ekki verki sínu. Og hugsunin er alls ekki síður til hjá þeim, sem sjálfir telja sig trúmenn, en hinum, sem vita að þeir eru það ekki. En nú er svo að sjá, sem sumir Islendingar séu að reyna að þreifa sig áfram til skýringar á þessum efnum, sem þeim finst eðlilegri og samrímilegri upplagi sínu heldur en hin forna persónutvíhyggja — guð og djöfull — eða hugsunin um gott vald og ilt. Og þá hafa orðin framsókn og tregða orðið fyrir þeim. Ætlun þeirra virð- ist vera, að lífið og hverskonar orka sé sífelt að leita að útrás, en jafnframt sé falin í tilverunni tilhneiging til þess að spyrna við framsókninni. Af þessu stafi það, hve alt gangi hægt og stundum alls ekki. Þetta eigi

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.