Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 45

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1930, Page 45
'JÐUNN Um Iregðu. 155 hinum háleitu hugsjónum þeirra og magni auðlinda þeirra. Þetta er ekkert furðuefni, því ekki er nema vika síðan þeir voru að brenna og grafa þá lifandi, sem ósammála voru ráðandi flokknum um skilyrðin fyrir sálu- hjálp, skera á opinberum stöðum upp kviðinn á þeim, sem höfðu aðrar hugmyndir um stjórnarfar, og hengja gamlar konur, sem ásakaðar voru um samneyti við djöf- ulinn. Enginn þeirra hafði verið annað en flakkandi villimaður fyrir ári síðan. Æðri þekking þeirra var alt of ung til þess að hún gæti rist djúpt, og þeir höfðu margar stofnanir og marga forystumenn, sem höfðu þann starfa að viðhalda úreltum hugmyndum, sem horfið hefðu að öðrum kosti. Breyiingarnar höfðu verið svo hægfara og ómerkjanlegar, alt fram til síðustu tíma, að ekki var við því að búast, að fleiri en fáeinir menn hefðu áttað sig á, að megnið af því, sem þeir trúðu og töldu eilífan sannleika, átti rót sína að rekja til óhjákvæmilegs mis- skilnings villimannsins*. Þessi mynd er vel dregin og sönn. Breytingarnar, sem hugsanalífið hefir tekið, samsvara ekki nema að ör- litlu leyti þeim breytingum, sem orðið hafa á ytri hög- um mannanna. Og hugsanalífið hefir breyzt meira fyrir ytri ástæður en fyrir nokkurn verulegan eðlismun, er fram hafi komið. Aðalviðfangsefnið í félagsmálum nú- tímans er að losna, með nokkurum flýti, við þær að- stæður, sem viðhalda frumstæðum hvötum villimannsins, sem nú koma ekki lengur að gagni, en eru til trafala. Sú var tíðin, að hæfileikinn til þess að geta reiðst nærri hamstola var nauðsynlegur viðhaldi einstaklingsins og þar með ættarinnar. Engin slík líffræðileg nauðsyn kallar nú að í þessum efnum. Sama er með ótta, langrækna hefnigirni og fjölmargar aðrar eigindir áslríðulífsins. Og stórkostlegur hluti hugsana vorra um mikilvægustu atriði

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.