Kirkjuritið - 01.01.1935, Qupperneq 30
18
Sigurður P. Sívertsen:
KirkjuritiS.
hann skrifað en grein sú, er cand. theol. Dagbjartur
Jónsson birti í „Prestafelagsritinu“ árið 1932. Hafði
liann kynzt Kirkjuhernum og stofnanda hans, meðan
liann dvaldi i London veturinn 1932, og skrifaði um
hann með miklum hlýleika og skilningi. En þeim, sem
þá grein liafa lesið og vilja fá frekari fróðleik um starf-
semi þessa, vil ég vísa á ágæta bók um herinn, er heitir:
„Wilson Carlile and the Church Army“. Bók þessi er
222 hls. að stærð, með mörgum ágætum myndum, en
kostar aðeins tvo „shillings". Hana má panta frá „The
Church Army Bookroom“ i London. I bókinni er áhrifa-
rík lýsing á fórnfýsi og trúaráhuga Wilson Carlile, á
haráttu hans og meðstarfenda hans, og á hinum mörgu
og fögru sigrum, er unnir voru undir merkjum Kirkju-
liersins. Skemtilegri og áhrifameiri bók liefi ég sjaldan
lesið.
En mest um vert væri, ef einhver landa vorra vildi
kynnast starfsemi þessari til hlítar af eigin sjón og
reynd. Það væri hollur skóli fyrir áhugasama leikmenn,
sem vildu starfa fyrir málefni Ivrists á landi voru, að
kynnast þessari kirkjulegu starfsemi. Sú ósk var rik í
huga okkar i sumar, að einhver landi okkar gæti gengið
í skóla Kirkjuhersins i London, og var okkur sagt, að
ef kostur væri á góðum manni til sliks náms, myndi
hann verða boðinn velkominn og að honum hlynt. Fátt
eða ekkert myndi kirlcju vorri gagnlegra á þessum erf-
iðu tímum en að fá sérmentaða leikmenn að fyrirmynd
Kirkjuhersins til samvinnu við presta vora, ekki sízt í
fjölmennustu söfnuðum landsins.
S. P. S.