Kirkjuritið - 01.01.1935, Blaðsíða 49
Kirkjuritið. Sálmaskáldið Thomas Kingo.
37
inum út yfir djúpið mikla, eins og þær hendi hljómun-
um út í kvöldloftið. Þeir leggjast æ fastara á strengina,
sveiflast æ hærra frá gólfi, klifra enn hærra, sveifla
strengjunum enn taumlausara, en hraðinn á klukkunum
eykst.
En svo er hætt. Klukkurnar sveiflast lausar og hægja
a sér. Þá gengur einn að, þar sem Sanla Maria bíður
kyr, og rekur ógurlegt högg í klukkuna. En hún svarar
'Ueð þrumuraust, sem yfirgnæfir allan hinn kliðinn, eða
svelgir hann í sig. Og i faðmi þessarar dimmu og mjúku
raddar, svífur síðasti hljómur klukknanna í Sevilla út
í geiminn.
í vestri hverfur síðasta rönd sólarinnar undir hæðirn-
ar í fjarska.
Magnús Jónsson.
Sálmaskáldið Thomas Kingo.
I homas Ivingo hefir verið talinn mesta sálmaskáld,
sein Danir hafa átt. Hann fæddist 15. des. 1634, varð
167!) biskup i Odense, en andaðist 14. okt. 1703. Það
v°ru því 15. des. 1934 liðin 300 ár frá fæðingu hans.
Hefir þessa verið minst í Danmörku með margvíslegu
•uóti og mikið verið um hann ritað.
í sálmabók vorri eru 25 af sálmum Kingós, flestir
Þýddir af Helga lector Hálfdánarsyni. Meðal þeirra má
■leína jólasálminn: „Upp, gleðjist allir, gleðjist þér“ (Sb.
og sálminn: „Far, veröld, þinn veg“ (Sb. 328).