Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 38

Kirkjuritið - 01.01.1935, Page 38
26 Benjamín Ivristjánsson: Kirkjuritið. En því undarlegri er tilfinningin fyrir því, að samt sem áður stöndum vér á þröskuldi hinnar eilífu veraldar, sern stendur. Það er veröld ljóssins, hins eilífa, sem aldrei þrýtur og ávalt hyggir hverja veröld upp að nýju, betri og fegri en áður. , „Eldur er beztur með ýta sonum og sólarsýn“. Þetta skal nú vera vort nýársguðspjall. Og við þá sólarsýn skyldum vér enn einu sinni hafa þrek og dirfð í oss að gera heitstrengingar til mikilla liluta — ef vér viljum leita að hliðum eilífðarinnar — og ef vér viljum ekki, að tíminn líði yfir oss eins og þegjandi spurning, eins og tilgangslaus skugganótt. Benjamín Kristjánsson. ER EKKERT AÐ ÓTTAST? I ræðu, sem dr. Harry Emerson Fosdick, einn hinn lang- frægasti og snjallasli prédikari Bandaríkjanna, flutti í New York nýlega, komst hann þannig að orði: „Það er ekki neina gott um það að segja, að kirkjan er hætt að prédika um helvíti og kvalirnar. En það er samt sem áður verl að veita því athygli, að þá svipu óttans, sem klerkarnir hafa lagt frá sér, nota sumar aðrar stéttir ennþá óspart og með geysilegum árangri — og nægir í því efni að benda á lækn- ana til dæmis“. „Það færi betur að leggja niður á öllum sviðum þá regin- flónsku, að ekkert sé að óttast. Auðvitað er það fjölda margt, sem ber að óttast, alt frá ólæknandi sjúkdómum og til þeirrar hættu, sem yfir menningunni vofir, að farast í næsta ófriði. En alveg eins og orðið ,,ást“ er látið merkja alla skapaða hluti frá hinni lægstu tegund holdlegs munaðar til æðstu hpllustu, þannig hefir orðið „ótti“ verið notað til að merkja alla skap- aða hluti, alt frá gagnslausri skelfingu hjátrúarinnar til þeirrar skarpsýnu forsjátni, sem kann að draga óviðráðanlegar afleið- ingar af gefnum forsendum". B. K.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.